Ásta Bjarnadóttir tekur við mannauðssviði Landspítala Sæunn Gísladóttir skrifar 11. nóvember 2015 15:01 Frá árinu 2014 hefur Ásta komið að stjórnendaþjálfun á vegum Landspítala. Vísir/Landspítali.
Ásta Bjarnadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðssviðs Landspítala. Mannauðssvið er nýtt svið á Landspítala en á síðustu misserum hefur verið lögð stóraukin áhersla á að þróa Landspítala sem góðan og eftirsóknarverðan vinnustað. Starfið er veitt til fimm ára og hefur Ásta störf í desember, segir í tilkynningu. Ásta lauk doktorsprófi í vinnusálfræði frá Háskólanum í Minnesota 1997 og hefur síðan starfað sem mannauðsstjóri, háskólakennari og ráðgjafi á sviði mannauðsstjórnunar, meðal annars hjá Háskólanum í Reykjavík, Capacent og Íslenskri erfðagreiningu. Ásta starfaði hjá Háskólanum í Reykjavík á árunum 2001 til 2010, síðustu árin sem framkvæmdastjóri mannauðs og gæðasviðs skólans. Frá árinu 2011 hefur hún starfað sem ráðgjafi hjá Capacent við verkefni á sviði stjórnunar, mannauðsstjórnunar og vinnusálfræði. Ásta er einn af stofnendum CRANET rannsóknaverkefnisins um stöðu og þróun íslenskrar mannauðsstjórnunar, og hún er vottaður verkefnastjóri (IPMA-C) og vottaður styrkleikamarkþjálfi. Frá árinu 2014 hefur Ásta komið að stjórnendaþjálfun á vegum Landspítala með áherslu á teymisvinnu stjórnenda og stuðning við úrvinnslu starfsumhverfiskönnunar, auk þess sem hún hefur aðstoðað við stjórnendaráðningar.
Mest lesið Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Sjá meira