Golf

Ólafía Þórunn efst eftir fyrsta daginn á lokamótinu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR. Mynd/GSÍmyndir.net
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni eru í góðri stöðu eftir fyrsta keppnisdaginn á lokamóti tímabilsins á LETAS atvinnumótaröðinni í golfi. Ólafía lék á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari og er hún í efsta sæti. Valdís Þóra lék á pari vallar eða 72 höggum og er hún 10. til 14. sæti. Þetta kemur fram á heimasíðu Golfsambands Íslands.

Mótið fer fram á Englandi og er að miklu að keppa fyrir íslensku atvinnukylfingana. Tuttugu efstu á stigalista mótaraðarinnar fara beint inn á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina í Marokkó í lok ársins.

Ólafía er í 16. sæti stigalistans en hún komst i gegnum niðurskurðinn á síðasta móti sem fram fór í Portúgal í síðustu viku. Valdís Þóra er í 25. sæti en hún missti af mikilvægum stigum á síðasta móti þegar hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Þetta er fyrsta tímabilið hjá Ólafíu á LETAS atvinnumótaröðinni, sem er sú næst sterkasta í Evrópu, á eftir sjálfri LET Evrópumótaröð kvenna.

Ólafía hefur tvívegis fagnað Íslandsmeistaratitlinum í golfi, 2011 og 2014. Valdís Þóra hefur líkt og Ólafía sigrað tvívegis á Íslandsmótinu í golfi, 2009 og 2012. Hún er á öðru tímabili sínu á LETAS mótaröðinni en fyrir ári síðan endaði hún í 38. sæti á stigalistanum.

Alls eru tvö stig á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í lok ársins. Ein íslensk kona hefur náð að tryggja sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni en það gerði Ólöf María Jónsdóttir úr Keili en það gerði hún árið 2004.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×