Þjálfari Skallagrímsliðsins vann fyrir spænska sambandið í jólafríinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. desember 2015 16:38 Manuel Angel Rodriguez og leikmenn kvennaliðs Skallagríms. Mynd/Fésbókarsíða Skallagríms
Eini taplausi meistaraflokksþjálfarinn í efstu tveimur körfuboltadeildum karla og kvenna á Íslandi hélt þjálfaranámskeið fyrir spænska körfuknattleikssambandið þegar hann fór heim til Spánar um jólin. Manuel Angel Rodriguez tók við kvennaliði Skallagríms fyrir þetta tímabil og það er ekki hægt að kvarta mikið yfir árangrinum síðan að hann gerðist þjálfari liðsins. Rodriguez og Skallagrímsstelpurnar hafa unnið alla ellefu deildar- og bikarleiki sína á tímabilinu en liðið á toppi 1. deildar kvenna og komið í átta liða úrslit Poweradebikarsins. Skallagrímsliðið er með 10 sigrar í 10 leikjum í 1. deildinni og með tíu stiga forskot en liðið í öðru sæti, KR, á þrjá leiki inni á Skallagrím. Manuel Angel Rodriguez er 35 ára gamall og þjálfaði í fyrra sænska liðið Solna Vikings í úrvalsdeild kvenna í Svíþjóð. Manuel Angel er nú staddur í jólafríi á Spáni en situr þó ekki aðgerðalaus þar sem hann hefur síðustu daga verið með kennslubúðir fyrir þjálfara á vegum spænska körfuknattleikssambandsins. Búðinar sem um ræðir nú eru kennsla í varnarleik en umgjörðin er skipulögð af þjálfunarskóla spænska körfuknattleikssambandsins. Þetta eru ekki fyrstu verkefnin sem Manuel tekur að sér fyrir spænska körfuknattleikssambandið en hann hefur meðal annars verið aðalþjálfari sextán ára landsliðs kvenna á Spáni.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira