Vistarbandi komið á opinbera starfsmenn Óli Kristján Ármannsson skrifar 19. júní 2015 07:00 Frá síðasta fundi í karphúsinu Samninganefnd ríkisins er vinstra megin og samninganefnd BHM til hægri, en í miðið situr Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari. Fréttablaðið/Ernir
Þórunn SveinbjarnardóttirVísir Engar viðræður hafa átt sér stað í kjaradeilum BHM og hjúkrunarfræðinga við ríkið frá því lög voru sett á verkfallið um síðustu helgi. Félagsfundur hjúkrunarfræðinga skoraði í vikunni á stjórnvöld að ganga án tafar til samninga og hefur Ólafur G. Skúlason, formaður félagsins, lýst vilja til þess að reyna til þrautar að landa samningi. Ríkissáttasemjari hefur verið í sambandi við deiluaðila, en enn hefur ekki þótt ástæða til að boða til funda, að sögn Elísabetar S. Ólafsdóttur, skrifstofustjóra hjá Ríkissáttasemjara. Síðustu fundir í deilunum voru haldnir tíunda þessa mánaðar, en lög voru sett á verkfallið laugardaginn þrettánda. Lögboðið er að fundað sé að minnsta kosti hálfsmánaðarlega í kjaradeilum hjá Ríkissáttasemjara. Komi ekki til funda fyrr verða samninganefndirnar því í síðasta lagi að hittast miðvikudaginn 24. júní. Ríkissáttasemjari myndi þá boða til fundarins. Þórunn Sveinbjarnardóttir segir mjög erfitt að segja til um líkurnar á því að saman náist í kjaradeilunni við ríkið fyrir tilskilinn frest í lögunum sem sett voru á verkfallið, 1. júlí. Hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma skipar Hæstiréttur gerðardóm sem kveða á upp úr um kjör stéttanna fyrir 15. ágúst. „Í rauninni er málið í höndum samninganefndar ríkisins,“ segir Þórunn. „Ef ríkið hyggst taka skref í áttina til krafna BHM þá væri sannarlega tilefni til að hittast, en það hefur ekkert slíkt gerst.“ Þórunn segir ljóst af orðanna hljóðan í lögunum, sem sett voru á verkfallið, að ekki megi grípa til neinna aðgerða til að þrýsta á samninga fram að þeim tíma að gerðardómur kveður upp úrskurð sinn. „Og það er ekki hægt að lesa lögin öðru vísi en svo að það sé jafnvel svo að fólk sem segir starfi sínu lausu geti ekki hætt á tilskildum tíma heldur sé hægt að lengja uppsagnarfrestinn.“ Þá vísar hún til ákvæða í lögum um opinbera starfsmenn um framlengingu uppsagnarfrests ef „til auðnar horfi“ í starfsstétt. Í lögin sem sett voru um síðustu helgi banna verkfallsaðgerðir BHM og hjúkrunarfræðinga „svo og frekari vinnustöðvanir eða aðrar aðgerðir þessara aðila sem er ætlað að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög þessi ákveða“. „Samkvæmt lögunum þá hefur ríkið öll tromp á hendi og búið að setja rammann fyrir gerðardóminn, með efnahagslegum forsendum,“ segir Þórunn og kveður ríkið búið að festa starfsfólk sitt með einhvers konar bandi. „Kannski vistarbandi.“ BHM hefur lýst því yfir að stefna eigi ríkinu vegna lagasetningarinnar á verkföllin. „Sá undirbúningur hefur verið í fullum gangi undanfarna sólarhringa,“ segir Þórunn og bætir við að farið verði fram á flýtimeðferð málsins fyrir dómi. Hún segist vonast til að stefnan verði tilbúin sem allra fyrst.Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.Vísir/PjeturVill gefa fólki tækifæri til að ná saman „Ég er ekki farinn að skoða þetta, en vel getur verið að Landspítalinn sé að skoða þetta eða einhverjar heilbrigðisstofnanir,“ segir Kristján Þór Júlíusson, um ákvæði í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins sem heimila ríkinu að lengja uppsagnarfrest horfi til vandræða í starfsstétt vegna fjöldauppsagna. „En ástæða þess að ég er ekki að bera mig eftir þessu nú þegar, er að ég hlýt að treysta á og vonast til þess að menn reyni til þrautar að ná samningum í þessum glugga sem er opinn núna til 1. júlí. Það er öllum fyrir bestu að ná samningum ef gerlegt er.“Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins37. gr. Nú vill embættismaður biðjast lausnar, og skal hann þá gera það skriflega og með þriggja mánaða fyrirvara, nema ófyrirsjáanleg atvik hafi gert hann ófæran um að gegna embættinu eða stjórnvald, sem lausn á að veita, samþykki skemmri frest. Skylt er að veita lausn ef hennar er löglega beiðst. Þó er óskylt að veita lausn frá þeim tíma sem beiðst er ef svo margir leita lausnar samtímis eða um líkt leyti í sömu starfsgrein að til auðnar um starfrækslu þar mundi horfa ef beiðni hvers um sig væri veitt. Getur stjórnvald þá áskilið lengri uppsagnarfrest, allt að sex mánuðum, en á meðan heldur embættismaðurinn óbreyttum launakjörum og réttindum. Ákvörðun þessi skal tilkynnt embættismanni svo fljótt sem verða má og eigi síðar en þegar sex vikur eru eftir af upphaflegum uppsagnarfresti.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Fleiri fréttir Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Sjá meira