Eftirlíkingum í ráðhúsinu verður eytt eftir mánaðamót 27. apríl 2015 13:40 Húsgögnin eru enn í ráðhúsinu. Þeim verður eytt í byrjun maí.
Reykjavíkurborg hyggst farga eftirlíkingum af Le Corbusier-húsgögnum sem eru í Ráðhúsi Reykjavíkur í byrjun næsta mánaðar. Þetta staðfestir Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður í samtali við Vísi. Sjá einnig: Borgin keypti fölsuð húsgögn í góðri trúHúsgögnin komust í hámæli í lok síðasta árs þegar greint var frá því að Cassina, leyfishafi hönnunar Le Corbusier, hefði krafið Reykjavíkurborg um háar skaðabætur vegna eftirlíkinganna. Um er að ræða stóla og sófa sem taka alls um 50 manns í sæti og voru keypt þegar ráðhúsið opnaði árið 1992. Sjá einnig: Eftirlíkingar í ráðhúsinu gætu kostað borgina yfir 100 milljónirEkki er búið að taka ákvörðun um hvað kemur í stað húsgagnanna en Kristbjörg segir að þar að kemur verði þau endurnýjuð í samræmi við innkaupareglur Reykjavíkurborgar.Skúli Rósantsson, eigandi Casa, söluaðila Cassina á Íslandi, segist sáttur við viðbrögð Reykjavíkurborgar í málinu.vísir/skjáskotÖðrum víti til varnaðar „Þeir hafa brugðist hárrétt við þessu og þetta verður vonandi öðrum víti til varnaðar,“ segir Skúli Rósantsson, eigandi Casa, söluaðila Cassina á Íslandi. „Þeir sjá það alveg að þetta er ekki eins og þetta á að vera. Þeir eiga ekki að vera með kóperingar í ráðhúsinu. Cassina eru ákaflega sáttir við þá niðurstöðu og viðbrögð borgarinnar í þessu máli,“ bætti Skúli við.Sjá einnig: Mikil viðbrögð vegna húsgagna Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði á sínum tíma að margir hefðu haft samband við hann falast eftir því að fá húsgögnin til sín. „Manni svíður það að þurfa að farga heilum húsgögnum,“ sagði Dagur en bætti við að ekki væri hægt að verða við slíkum ábendingum vegna höfundarréttar enda kom á daginn að Cassina sagði að ekki kæmi annað til greina en að húsgögnunum yrði eytt.
Tengdar fréttir Eftirlíkingunum verður fargað Söluaðilaðili ítalska húsgangaframleiðandans Cassina segir að ólöglegar eftirlíkingar af húsgögnum í Ráðhúsinu hafi uppgötvast fyrir tilviljun í apríl. 15. desember 2014 14:38 Förguðu eftirlíkingum af Egginu Rúmlega fimmtíu stykkjum af húsgögnum var fargað fyrr í vikunni en þar reyndir eftirlíkingar á ferð sem komu til landsins árið 2011. 6. nóvember 2014 10:15 Eftirlíkingar í ráðhúsinu gætu kostað borgina yfir 100 milljónir "Það þýðir ekkert að byggja flott ráðhús og vera með eitthvað gervi í því,“ segir Skúli Rósantsson, eigandi húsgagnaverslunarinnar Casa. 15. desember 2014 07:00 Mikil viðbrögð vegna húsgagna Reykavíkurborg mun farga fjölda falsaðra sófa og hægindastóla. Margir hafa haft samband við borgina og falast eftir húsgögnunum. 17. desember 2014 07:45 Borgin keypti fölsuð húsgögn í góðri trú Reykjavíkurborg taldi að Le Corbusier-húsgögnin sem keypt voru í Ráðhúsið árið 1992 hefðu verið framleidd með leyfi. 16. desember 2014 07:00 Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira
Eftirlíkingunum verður fargað Söluaðilaðili ítalska húsgangaframleiðandans Cassina segir að ólöglegar eftirlíkingar af húsgögnum í Ráðhúsinu hafi uppgötvast fyrir tilviljun í apríl. 15. desember 2014 14:38
Förguðu eftirlíkingum af Egginu Rúmlega fimmtíu stykkjum af húsgögnum var fargað fyrr í vikunni en þar reyndir eftirlíkingar á ferð sem komu til landsins árið 2011. 6. nóvember 2014 10:15
Eftirlíkingar í ráðhúsinu gætu kostað borgina yfir 100 milljónir "Það þýðir ekkert að byggja flott ráðhús og vera með eitthvað gervi í því,“ segir Skúli Rósantsson, eigandi húsgagnaverslunarinnar Casa. 15. desember 2014 07:00
Mikil viðbrögð vegna húsgagna Reykavíkurborg mun farga fjölda falsaðra sófa og hægindastóla. Margir hafa haft samband við borgina og falast eftir húsgögnunum. 17. desember 2014 07:45
Borgin keypti fölsuð húsgögn í góðri trú Reykjavíkurborg taldi að Le Corbusier-húsgögnin sem keypt voru í Ráðhúsið árið 1992 hefðu verið framleidd með leyfi. 16. desember 2014 07:00