Talið er að iPad Pro, ný útgáfa af spjaldtölvu Apple, fari í sölu í fyrstu viku nóvembermánaðar. Þetta hefur Business Insider eftir japönsku Applefréttasíðunni Macotakara.
Fyrirtækið hafði áður gefið út að iPad Pro myndi að öllum líkindum rata í verslanir í nóvember en ekki hvenær mánaðarins.
Macotakara segir sig þó hafa áreiðanlegar kínverskar heimildir fyrir því að það verði í fyrstu viku nóvember. Sömu heimildir herma að Apple Pencil, penni sem má nota til að skrifa eða teikna á spjaldtölvunni, mun fara í sölu samhliða iPad Pro.
Macotakara hefur þó ekki alltaf haft rétt fyrir sér í þessum efnum. Fréttasíðan hafði þó rétt fyrir sér þegar iPhone 5s átti í hlut en Macotakara greindi frá því að á honum yrði nýr Home-takki.
IPad Pro verður töluvert stærri en fyrri útgáfur af spjaldtölvunni og er skjárinn 12.9 tommur. Þá er iPad Pro 6,9 millimetrar að þykkt og tæp 800 grömm að þyngd.
Nýr iPad í búðir í nóvember

Tengdar fréttir

Mun risa iPad stela sviðsljósinu?
Apple hefur brugðist við dræmri sölu iPad með því að þróa risa iPad.

iPad Pro lítur dagsins ljós
Spjaldtölvan er 12,9" og kaupa má sérstakan penna til að skrifa á hana.

Nýtt stýrikerfi Apple kemur út
iOS9 kom út í dag og þar má finna ýmsar nýjungar.

Apple fer í aðra átt en Steve Jobs sá fyrir sér
Þróun iPhone og iPad gott dæmi um það.