Viðskipti innlent

Fjárfestar kaupa í Alvogen

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Róbert Wessman sem verður áfram forstjóri fyrirtækisins segir það mikla viðurkenningu að fá jafn öfluga fjárfestingasjóði til liðs við Alvogen.
Róbert Wessman sem verður áfram forstjóri fyrirtækisins segir það mikla viðurkenningu að fá jafn öfluga fjárfestingasjóði til liðs við Alvogen. Vísir/Vilhelm
Hluthafahópur, undir forystu alþjóðlegu fjárfestingasjóðanna CVC Capital Partners og Temasek, hefur keypt meirihluta í bandaríska lyfjafyrirtækinu Alvogen. Kaupverðið er ekki gefið upp, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins miðast heildarvirði Alvogen í þessum viðskiptum við 270 milljarða króna.

Alþjóðlegar höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Íslandi og Róbert Wessman er forstjóri þess. Hann verður áfram leiðandi hlutahafi. Á Íslandi starfa um 80 manns á vegum Alvogen og það vinnur nú að byggingu nýs Hátækniseturs í Vatnsmýri.

Alvogen er í dag starfandi í 35 löndum og hjá fyrirtækinu starfa um 2.300 starfsmenn. Róbert Wessman sem verður áfram forstjóri fyrirtækisins segir það mikla viðurkenningu að fá jafn öfluga fjárfestingasjóði til liðs við Alvogen.

„Þeir hafa trú á okkar framtíðarsýn, þ.e. að byggja upp leiðandi fyrirtæki í heiminum á okkar sviði. Þessir sjóðir hafa skuldbundið sig til að styðja við framtíðarvöxt Alvogen með þekkingu sinni og fjármagni,“ segir Róbert.

Alvogen hefur ekki gefið út rekstrartekjur sínar en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru tekjur fyrirtækisins yfir 100 milljarðar króna á þessu ári og rekstrarhagnaður um 30 milljarðar króna. Fjárfestingasjóðirnir CVC og Temasek eru í hópi stærstu fjárfestingasjóða í heiminum í dag og nema heildarumsvif þeirra um 290 milljörðum bandaríkjadala eða um 38 þúsund milljörðum íslenskra króna.

„Vöxtur fyrirtækisins hefur verið mikill undanfarin sex ár og erlendir fjárfestingasjóðir og önnur lyfjafyrirtæki fylgst náið með Alvogen. Innkoma nýrra hluthafa mun styðja enn frekar við okkar framtíðarsýn og styðja við framtíðarvöxt fyrirtækisins. Þessir sjóðir sjá hversu góðum árangri við höfum náð á skömmum tíma, en það sem ræður þó mestu um þeirra ákvörðun að fjárfesta í Alvogen nú er trú þeirra á lykilstjórnendum félagsins og okkar framtíðarsýn,“ útskýrir Róbert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×