Varúð í ávísun Ritalins til barna Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 19. desember 2015 08:00 Notkun Íslendinga á lyfjum sem innihalda metýlfenidat er meira en tvöföld meðalnotkun annarra Norðurlandaþjóða.
Nýverið var birt greinargerð um rannsóknir á virkni metýlfenidat-lyfja við athyglisbresti í börnum og unglingum í hinu virta Cochrane Review. Greinargerðin birtist 25. nóvember og greinir frá skorti á rannsóknum á ágæti lyfjanotkunar við ADHD í börnum. Vísindamenn teymisins lýsa áhyggjum af aukaverkunum methylphenidate-lyfja á móti hóflegri gagnsemi lyfjanna við athyglisbresti. Aukaverkanir skráðar hjá börnum eru svefnvandamál, minni matarlyst og sjóntruflanir. Niðurstaða Cochrane-teymisins er að ávísa ætti lyfinu Ritalin af varkárni til barna og unglinga og fylgjast vel með notkun þess. Dr. Morris Zwi, einn höfunda greinargerðar um rannsóknina og barna- og unglingageðlæknir hjá Whittington í London, sagði niðurstöðurnar mikilvægar fyrir heilbrigðisstarfsmenn og foreldra barna með ADHD. „Væntingar okkar um meðferðina eru meiri en þær ættu að vera, og þótt greinargerð okkar sýni einhverja sönnun nytsemi þeirra þá ættum við að hafa í huga að sú niðurstaða er ekki áreiðanleg. Það sem við þurfum enn eru góðar rannsóknir sem meta áhættu með tilliti til nytsemi lyfjanna,“ sagði Zwi.Magnús Jóhannsson læknir hjá Embætti Landlæknis segir niðurstöður nýrrar úttektar Cochrane Review ekkki koma á óvart.Mynd/Ragnar Th. SigurðssonMagnús Jóhannsson, læknir hjá Landlækni, segir vel þekkt að lyfið gagnist ekki öllum. Hann bendir á að fimmtíu ára reynsla sé af lyfinu. „Metýlfenidat er gamalt lyf og er áratuga reynsla af notkun þess, verkunum og aukaverkunum,“ segir Magnús. Lengi hafi verið vitað að að metýlfenidat gagnist ekki öllum með ADHD. Fram hafi komið tölur eins og 70 eða 80 prósent. „Svipað gildir um aukaverkanir sem eru vel þekktar en þær algengustu eru lystarleysi, svefntruflanir og höfuðverkur. Auk þessa er lyfið ávanabindandi og eftirsótt af fíklum,“ segir Magnús. Niðurstaða úttektarinnar var að lyfið gagnist við ADHD en á grundvelli fyrirliggjandi gagna/rannsókna sé ekki hægt að meta með vissu hve mikið það gagnist og kemur þessi niðurstaða ekki á óvart. Höfundar greinarinnar höfðu líka áhyggjur af aukaverkunum, sem að vísu eru allvel þekktar vegna þess hve lyfið hefur verið mikið notað og lengi. Öll lyf þarf að meta með tilliti til verkana og aukaverkana og þannig tryggja að hvert lyf geri meira gagn en skaða og er þessi úttekt innlegg í þá umræðu.“ Notkun Íslendinga á lyfjum sem innihalda metýlfenidat er meira en tvöföld meðalnotkun annarra Norðurlandaþjóða. Metýlfenidat (Ritalin) hefur verið á markaði hér síðan 1965 og forðalyfin (Ritalin Uno og fl.) síðan 2002. Magnús segir að þrátt fyrir efasemdir um gagnsemi lyfsins muni það ekki hafa áhrif á notkun lyfsins til skamms tíma. „Mín niðurstaða er því sú að umrætt Cochrane-Review sé gott innlegg en fátt komi þar á óvart og það muni ekki hafa áhrif á notkun þessa lyfs, að minnsta kosti ekki til skamms tíma litið,“ segir Magnús.
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira