Benedikt Sveinsson vann þá Theodór Emil Karlsson á átjándu og síðustu holunni eftir jafna og skemmtilega keppni.
Benedikt Sveinsson mætir Axel Bóassyni í úrslitunum eftir hádegi en þeir koma báðir úr Keili.
Benedikt sá til þess að Kristján Þór Einarsson úr GM náði ekki að verja titilinn í ár því Benedikt vann Íslandsmeistarann frá því í fyrra í átta manna úrslitunum.
Axel Bóasson vann 4/3 sigur á Stefáni Má Stefánssyni í undanúrslitunum en Axel hefur þegar slegið út einn Keilismann í holukeppninni í ár því hann vann Sigurþór Jónsson í átta manna úrslitunum.
Benedikt GK sigrar Theodór GM á 18 - mætir Axel GK í úrslitum #eimskipgolf2015 pic.twitter.com/eg7hEICwFC
— Golfsamband Íslands (@Golfsamband) June 21, 2015