Frumtak II fjárfestir í Watchbox fyrir 50 milljónir Sæunn Gísladóttir skrifar 8. desember 2015 13:59 Watchbox appið auðveldar fólki að deila myndum og stuttum myndböndum innan hópa. Mynd/aðsend
Nýsköpunarfyrirtækið Appollo X hefur gert samning við Frumtak 2 um 50 milljóna króna fjármögnun. Appollo X hefur undanfarna mánuði unnið að þróun snjallsímaforritsins Watchbox og snýr fjárfesting Frumtaks 2 ekki síst að því að styðja við áframhaldandi uppbyggingu þess verkefnis, segir í tilkynningu. Fram að þessu hefur frumkvöðullinn og fjárfestirinn Kjartan Örn Ólafsson fjármagnað félagið og mun hann áfram gegna þar stjórnarformennsku. Fjárfesting þessara tveggja aðila í AppolloX nemur samtals 70 milljónum króna. Watchbox appið auðveldar fólki að deila myndum og stuttum myndböndum innan hópa. „Reiknað er með að um þrjúþúsund milljörðum mynda verði deilt í gegnum snjallsíma á árinu sem er að líða. Það eru fleiri myndir en hafa verið teknar á filmu frá upphafi. Markaðurinn fer ört vaxandi og það eru mikil tækifæri fólgin í nýjum dreifileiðum fyrir myndefni og munu tækifærin eingöngu aukast á komandi árum”, segir Davíð Örn Símonarson framkvæmdastjóri Appollo X. Appollo X teymið er ekki að koma að smáforritagerð í fyrsta sinn en meðal fyrri forrita má nefna samskiptamiðilinn Blendin og smáleikinn Dusty Dots auk þess sem sama teymi hélt úti Vaktinni, sem var ritstýrður hópaðgangur 25.000 Íslendinga á Snapchat. „Við höfum fylgst með Appollo X teyminu í nokkur ár og teljum að þarna sé á ferðinni frábært teymi sem eigi eftir að gera stórkostlega hluti. Við hlökkum til að verða þeim samferða á þeirri leið” segir Eggert Claessen framkvæmdastjóri Frumtaks 2. Teymið leggur land undir fót í byrjun janúar og mun flytja til Bandaríkjanna til þess að styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins.Nánar verður fjallað um fjárfestingasjóðinn Frumtak II í Markaðnum á morgun.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira