Barnabækur, fatnaður og heyrnartól í jólapökkunum í ár Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. desember 2015 19:03 Lítil snót virðir fyrir sér jólapakkasöfnun í Kringlunni.
Um 20 próset aukning var í sölu fatnaðar í síðustu viku miðað við á sama tíma í fyrra. Bókaverslun fer einnig vel af stað og merkjanleg aukning er í sölu barnabóka. Þetta kemur fram í úttekt Rannsóknarseturs verslunarinnar á tímabilinu 30. nóvember til 6. desember. Í tilkynningu frá Samtökum verslunar og þjónustu segir að góða sölu á fatnaði megi rekja til þess að verslanir eru í auknum mæli farnar að bjóða fatnað með 15 prósent afslætti til að mæta væntanlegum verðbreytingum sem verða vegna niðurfellingar tolla um áramótin. Sala á spjaldtölvum, sem hafa notið vinsælda undanfarin ár, virðist þó hafa dregist saman milli ára. Merki séu þannig um að neytendur kjósi nú fremur snjallsíma með stóra skjái enn spjaldtölvur. Sala á snjallsímum hefur verið góð á árinu en það virðist þó draga úr henni nú í aðdraganda jólanna segir í tilkynningunni. Nokkur aukning hefur hins vegar verið í sölu á ferðahátölurum og heyrnartólum.Black Friday dró úr sölu vikunnar Í tilkynningunni kemur einnig fram að kaupmenn hafi almennt fundið fyrir minni sölu í síðustu viku miðað við vikuna þar á undan. Ástæðuna telja þeir helst vera vegna mikils fannfergis og hvassviðris, auk þess sem margir neytendur hafi nýtt sér tilboð sem kennd voru við „Black Friday“. Úttektin var unnin fyrir Samtök verslunar og þjónustu og henni er ætlað að gefa samanburðarhæfa mynd af verslun á Íslandi milli ára. Leitað var til valinna verslana sem hver um sig mat heildarsölu tímabilsins, þær breytur sem höfðu áhrif á hana og báru síðan saman við söluna sömu viku síðasta árs. Ef undanfarin vika er borin saman við sama tímabil fyrir ári síðan má greina nokkurn samdrátt í sölu búsáhalda og heimilisbúnaðar. Sala raftækja, sem hefur aukist mikið það sem af er ári, var nokkuð meiri í síðustu viku en á sama tíma í fyrra. en aukningin var þó töluvert minni en hún hefur verið undanfarið. Í fyrra hófst nýtt kortatímabil 5. desember sem hafði jákvæð áhrif á verslun þá í byrjun mánaðarins. Í ár hefst kortatímabil mánaðarins þann 12. Desember og segja Samtök verlsunar og þjónustu því viðbúið að verslunin taki mið af því og færist aftar í mánuðinn.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira