Spá lægri hagvexti árið 2016 Sæunn Gísladóttir skrifar 13. nóvember 2015 11:06 Hagstofan spáir því að einkaneysla og verðbólga muni aukast á næsta ári.
Hagstofa Íslands gerir ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 4,3% á þessu ári, en hún aukist um 3,5% árið 2016. Þetta kemur fram í nýrri þjóðhagsspá. Spáin nær til áranna 2015–2019. Fjárfesting og einkaneysla mun samkvæmt spánni knýja hagvöxtinn fyrstu tvö ár spátímans. Árið 2015 er gert ráð fyrir að einkaneysla verði um 4,4% og fjárfesting um 17,7%. Á árinu 2016 er gert ráð fyrir að vöxtur einkaneyslu verði 4,7% og fjárfestingar um 15,5%. Árin 2017 til 2019 er spáð 2,5–2,8% hagvexti og 2,7–4,2% aukningu einkaneyslu, en það dregur úr aukningu fjárfestingar. Búist er við að samneysla aukist um 1,1–1,5% árlega 2015–2018 en opinber fjárfesting aukist lítillega. Lágt olíu- og hrávöruverð ásamt lítilli alþjóðlegri verðbólgu og gengisstyrkingu krónunnar hafa haldið verðbólgu á Íslandi niðri þrátt fyrir hækkandi launakostnað. Spáð er að verðbólga aukist á næstunni og verði 3,2% árið 2016 og 3,7% árið 2017 en fari lækkandi eftir það. Kjarasamningar á árinu, sem ná til flestra launþega, fela í sér miklar launahækkanir árin 2015 og 2016. Endurskoðunarákvæði í kjarasamninga og SALEK-samkomulagið viðhalda til skamms tíma óvissu um launakjör á næstunni. Hagstofan gaf síðast út þjóðhagsspá 29. apríl síðastliðinn og er næsta útgáfa ráðgerð í apríl 2016.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira