Innlent

Harpa telur niður í nýtt ár

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
mynd/harpa
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík mun telja niður í nýtt ár um áramótin á ljósahjúp Hörpu. Ártalið 2015 verður birt á hjúpnum á gamlársdag og þegar nýtt ár nálgast hefst niðurtalning úr sextíu sekúndum þar til árið 2016 er gengið í garð.

Harpa slæst því í hóp þekktra kennileita ýmissa borga víða um heim sem telja niður á tímamótum. Hægt er að fylgjast með flugeldasýningu höfuðborgarbúa á Hörputorgi, en þar er gott útsýni yfir mörg íbúðahverfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×