Margar ástæður fyrir verðhækkunum á flugeldum Samúel Karl Ólason skrifar 30. desember 2015 15:59 Jón segir að breytingarnar á innihaldi pakka og terta hafi orðið til þess að verðið hækkaði. Meðal annars hafi vörur sem áður voru seldar sér, settar í pakka. Vísir/Ernir
Markaðs- og sölustjóri Landsbjargar segir margar ástæður vera fyrir verðhækkunum á flugeldum undanfarin ár. Þær séu til komnar vegna breytinga á vörunum, hækkun á kostnaði frá Kína, dýrari innflutningi og nýrrar reglugerðar um vottanir, svo eitthvað sé nefnt. „Á tveggja til fjögurra ára fresti gerum við breytingar á innihaldi á okkar aðalvörum án þess að breyta nafni vörunnar. Þetta gerum við meðal annars vegna kröfuharðara kaupanda og ýmissa nýjunga sem koma reglulega frá Kína og við viljum setja í okkar vörur,“ segir Jón í bréfi til Vísis. Fyrr í dag birti Vísir yfirlit yfir verðmun á helstu vörum flugeldasölunnar frá 2010 til 2015.Sjá einnig: Flugeldar hækka langt umfram verðlag Jón segir að breytingarnar á innihaldi pakka og terta hafi orðið til þess að verðið hækkaði. Meðal annars hafi vörur sem áður voru seldar sér, settar í pakka. Verð frá framleiðendum hefur hækkað samkvæmt Jóni, vegna krafna um aukin gæði, öryggi og útlit. Þá hafi launahækkanir einnig skilað af sér verðhærri vöru. Einnig hafa kröfur verið auknar um öryggi í flutningi á sprengiefnum í Kína og við það hefur kostnaður aukist bæði hjá höfnum, skipafélögum og landflutningi. Þá sé til dæmis gerð krafa um það hér heima að allir bílstjórar hafi ADR réttindi sem sé mjög kostnaðarsamt. Að lokum segir Jón að samkeppni í sölu flugelda sé gríðarleg og hafi sennilega aldrei verið meiri. Því verði að verðleggja vöruna eftir því og ekki sé hægt að leyfa sér óeðlilegar verðhækkanir.
Mest lesið Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira