Veist að samkynhneigðu pari sem leiddist eftir Lækjargötu Birgir Olgeirsson skrifar 20. desember 2015 11:32 Jóhann Örn lýsir aðkasti sem hann og kærasti hans urðu fyrir í Lækjargötu í nótt. Vísir/Aðsend/GVA „
Mér finnst mjög leiðinlegt að við getum ekki haldið í höndina á hvor öðrum eins og Jón og Gunna,“ segir Jóhann Örn Bergmann Benediktsson en veist var að honum og kærasta hans í Lækjargötu í nótt. Jóhann lýsti atburðarásinni fyrir vinum sínum á Facebook í nótt þar sem hann sagðist fara sorgmæddur að sofa vitandi að hann búi í samfélagi þar sem hann er gagnrýndur fyrir að vera eins og hann er og elska þann sem hann elskar. Jóhann Örn lýsir atvikum þannig fyrir Vísi að hann og kærasti hans hefðu verið á gangi með fram Lækjargötunni í nótt, til móts við leigubílaröðina, þegar ókvæðisorðum var hrópað að þeim. Barst fúkyrðaflaumurinn frá leigubílaröðinni. „Við erum að ganga með fram götunni og þá heyri ég kallað að okkur: „Við vorum á undan þér í leigubílaröðinni.“ Þeir notuðu orð á borð við faggaógeð og hommaviðbjóður,“ segir Jóhann. Jóhann, sem er 23 ára, segir að um fjóra menn á hans aldri hafi verið að ræða. „Þetta endaði með því að ég labbaði upp að þeim og spurði hvað þeim gekk til. Þá fóru þeir að kalla mig öllum illum nöfnum og sögðu „drullaðu þér í burtu hommaógeð“. Ég svaraði á móti að þeim hlyti að líða svakalega illa. Þá ýtti einn þeirra við mér þannig að ég rann til í hálkunni og datt í götuna,“ segir Jóhann Örn. Hann segir þá sem þekkja sig besta vita að hann er seinn til vandræða en á þessum tímapunkti hafi honum verið algjörlega misboðið. Þegar hann hafði staðið upp aftur þurfti kærastinn hans að stöðva hann frá því lenda í slagsmálum við þessa menn. Jóhann segir nokkra vegfarendur hafa orðið vitni að þessu, sumir hafi gengið fram hjá en einn af leigubílstjórunum hefði hrópað á drengina og sagt þeim að láta af þessari hegðun. Hann segir sig og kærasta sinn hafa sloppið án teljandi meiðsla en stoltið sé sært.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Sjá meira