Viðskipti innlent

Launavísitala hækkaði um 0,9% í nóvember

Sæunn Gísladóttir skrifar
Kaupmáttur launa hækkaði um 1,2 prósent í nóvember frá fyrri mánuði.
Kaupmáttur launa hækkaði um 1,2 prósent í nóvember frá fyrri mánuði. Vísir/Stefán
Launavísitala í nóvember 2015 er 537,6 stig og hækkaði um 0,9 prósent frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,7 prósent, þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Vísitala kaupmáttar launa í nóvember 2015 er 128,4 stig og hækkaði um 1,2 prósent frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 6,5 prósent.

 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×