Borga langt undir Norðurlandaverði Sæunn Gísladóttir skrifar 22. desember 2015 07:00 Hörður Arnarson
Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil, segir fyrirtækið mjög sátt við það orkuverð sem þeir fengu í samningum við Landsvirkjun. Á sama tíma fullyrða Samtök iðnaðarins og fleiri að Landsvirkjun bjóði ekki samkeppnishæft verð miðað við verðþróun á öðrum raforkumörkuðum. Þessu hafnar Landsvirkjun alfarið en fyrirtækið stendur nú í erfiðum samningaviðræðum við Norðurál um nýjan raforkusamning.Almar GuðmundssonSamkvæmt skýrslu frá lífeyrissjóðnum Stefni greiðir Thorsil Landsvirkjun 43 dollara á megavattstund með flutningskostnaði. Fram kemur í skýrslunni að þetta verð sé allt að helmingi lægra en í öðrum löndum, til samanburðar sé raforkuverðið 66 dollarar í Hollandi og 57 dollarar í Skandinavíu. „Allir sem kaupa vilja sem lægst verð og þeir sem selja vilja sem hæst verð, en við náðum samkomulagi um verð og erum sáttir við þann samning,“ segir Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélag Akraness, bendir á að raforkuverð sé mun lægra í Skandinavíu um þessar mundir. Raforkuverðið Nordic Power mælist nú milli 17 og 20 evrur. „Það þarf að passa það að samkeppnisskilyrði fyrirtækja hér á landi sé með sambæranlegum hætti og í þeim löndum sem við erum að bera okkur saman við. Ef það er ekki, þá eru umtalsverðar líkur á því að við töpum störfum.“ Í pistli gagnrýndi Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, þróun raforkuverðs á Íslandi. Hann benti á að 2011 og 2012, þegar Landsvirkjun markaði núverandi verðstofn, voru algeng verð á erlendum mörkuðum um 50-60 dollarar á megavattstund. „Þetta virðist þannig að menn horfi ennþá á stöðuna eins og hún var þá, en hún hefur breyst ansi mikið síðan. Landsvirkjun býður lengri tíma samninga eftir því sem ég kemst næst en almennt tíðkast í Evrópu. Hins vegar er verðið í Evrópu orðið það lágt að við teljum eðlilegt að ef menn ætla að bjóða samkeppnishæf kjör eins og Landsvirkjun boðar, þá hljóti þeir að þurfa að taka bæði tillit til hratt lækkandi verðs og annarra sjónarmiða,“ segir Almar. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segist telja að verið sé að bjóða samkeppnisfæra raforkusamninga, það endurspeglist í mikilli eftirspurn. „Það er í raun meiri eftirspurn heldur en við ráðum við,“ segir hann. Hörður segir Landsvirkjun fylgjast mjög grannt með því hvernig raforkumarkaður þróast erlendis. „Það sem hefur verið að breytast erlendis er fyrst og fremst skammtímamarkaðurinn, en við teljum að verð á langtímasamningum sé ekki að breytast mjög mikið. Með langtímasamningum þarf verðið að duga fyrir nýbyggingakostnaði virkjanna. Hann er umtalsvert hærri erlendis en við erum að bjóða.“
Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Horfur á húsnæðismarkaði versna Viðskipti innlent Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Viðskipti innlent Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Neytendur „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Sjá meira