Fækkun útibúa heldur áfram um land allt Ingvar Haraldsson skrifar 10. desember 2015 07:00
Að óbreyttu mun bankaútibúum hér á landi fækka um 8 á þessu ári. Þá verða útibúin 87 en þau voru 152 árið 2008 og hefur því fækkað um 43 prósent. Á sama tíma hefur heimsóknum í heimabanka fjölgað hratt. Landsbankinn bendir á að yfir 80 prósent bankaviðskipta séu orðin rafræn og hlutfallið fari hækkandi.Helgi Teitur HelgasonHeimsóknir í netbanka Landsbankans hafa verið 11 sinnum fleiri en heimsóknir í útibú árið 2012 en á síðasta ári voru heimsóknirnar orðnar 20 sinnum fleiri. Heimsóknum til gjaldkera hefur aftur á móti fækkað um fjórðung milli áranna 2012 og 2014. „Þetta vinnur saman, færri heimsóknir í útibú og fleiri heimsóknir í netbanka,“ segir Helgi Teitur Helgason, framkvæmdastjóri Einstaklingasviðs Landsbankans. Hann bendir á að þróunin sé að eiga sér stað þrátt fyrir mikla fjölgun erlendra ferðamanna hér á landi. Opnunartími margra útibúa hefur einnig verið styttur og starfsmönnum fækkað. Landsbankinn tilkynnti í nóvember að útibú bankans í Seyðisfirði yrði fært í húsakynni sýslumannsins, opnunartími yrði styttur og starfsmönnum yrði fækkað úr þremur í einn.Útibúi Landsbankans á Þingeyri var lokað í haust en útibú bankans á Ísafirði leysti útibúið af hólmi.vísir/pjeturHelgi segir að heimsóknir í viku hverri í fámennustu byggðarlögum þar sem Landsbankinn rekur afgreiðslur hlaupi á nokkrum tugum. „ Kannski niður í tvo til þrjá tugi,“ segir Helgi. Í sumum bæjarfélögum hafi þjónustuheimsóknir tekið við hlutverki útibúa sem helst sinni þörfum eldri viðskiptavina. Helgi telur þó enn að útibú gegni mikilvægu hlutverki. „Það er ekki hægt að segja að útibúin séu dauð eða þau muni hverfa alveg.“ Viðskiptavinir vilji enn sækja ráðgjöf og upplýsingar í útibú þegar þeir séu að taka stórar ákvarðanir, til að mynda taka húsnæðislán.
Mest lesið Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Neytendur Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Horfur á húsnæðismarkaði versna Viðskipti innlent „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Viðskipti innlent Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Sjá meira