Skýr vísbending um að markmið kjarasamninganna hafa náðst Sæunn Gísladóttir skrifar 10. desember 2015 10:27 Kaupmáttur launa er nú orðinn hærri en hann hefur verið nokkurn tíma áður. Mynd/Vilhelm
Kaupmáttur launa er nú orðinn hærri en hann hefur verið nokkurn tíma áður. Launa- og kaupmáttarþróun á síðasta ári var launþegum almennt verulega hagstæð. Regluleg laun landsmanna voru að jafnaði 7,9% hærri á öðrum ársfjórðungi 2015 en á sama fjórðungi 2014, sem gaf að meðaltali 5,8% kaupmáttaraukningu á því tímabili. Kaupmáttur á út frá launavísitölu varð hæstur í ágúst 2007 og náði svo aftur sama stigi í nóvember 2014 og hefur aukist mikið síðan. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. Fram kemur í Hagsjánni að skýr vísbending sé um að markmið kjarasamninganna á almenna markaðnum um meiri hækkun launa til þeirra lægst launuðu hafa náðst.Almenni markaðurinn hækkar mest frá síðasta áriFram kemur í Hagsjánni að regluleg laun voru að meðaltali 4% hærri á þriðja ársfjórðungi 2015 en á fjórðungnum á undan og jókst kaupmátturinn um 2,8% á þessu tímabili. Árshækkun allra frá öðrum ársfjórðungi 2014 var eins og áður segir 7,9%. Hækkunin var 8,3% á almennum vinnumarkaði og 6,7% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 5,9% og laun starfsmanna sveitarfélaga um 7,4%. Í tölum þriðja ársfjórðungs 2015 gætir áhrifa kjarasamninga á almennum vinnumarkaði sem voru undirritaðir í maí og júní. Þá gætir einnig áhrifa af endurskoðun starfsmatskerfis sveitarfélaga, auk áhrifa úrskurðar gerðardóms um launahækkanir félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og 18 stéttarfélaga í Bandalagi háskólamanna. Sé litið á þróun þessara hópa til aðeins lengri tíma má sjá að frá upphafi ársins 2011 hafa þeir þróast með mjög álíkum hætti. Þannig munar einungis 1,4% á launahækkunum almenna markaðarins og hins opinbera á þessu tímabili. Munur getur myndast á milli hópanna á ákveðnum tímabilum, en hann jafnast yfirleitt fljótlega aftur.Verkafólk hækkar mest í launum, sérfræðingar minnst Sé litið á launahækkanir starfsstétta milli 3. ársfjórðungs 2014 og 2015 sést að munurinn á milli þeirra er töluverður. Verkafólk og þjónustu- og afgreiðslufólk hefur hækkað sýnu mest og sérfræðingar og stjórnendur minnst. Þessar tölur eru þannig vísbending um að markmið síðustu kjarasamninga um leiðréttingu launa þeirra lægst launuðu hafi náðst að einhverju leyti.Fjármálaþjónustan sker sig úr Mælingar fyrir atvinnugreinar byggja á öllum starfsmönnum innan viðkomandi greinar, þannig að sérhver atvinnugrein inniheldur margs konar starfsstéttir. Sé litið á þróunina frá 3. ársfjórðungi 2014 hafa laun hækkað mest í samgöngum og flutningum, eða um 9,4%, enda mikill uppgangur í ferðaþjónustu. Hækkanir í hinum ýmsu greinum eru á bilinu 8-9% nema í fjármálaþjónustu þar sem hækkunin er einungis 4,7% eða nákvæmlega helmingurinn af hækkuninni í samgöngum og flutningum. Kjarasamningur Samtaka starfsmanna í fjármálaþjónustu og SA var reyndar ekki gerður fyrr en í lok 3. ársfjórðungs þannig að áhrifa hans gætir ekki. Fram kemur í Hagsjánni að þessar tölur séu skýr vísbending um að markmið kjarasamninganna á almenna markaðnum um meiri hækkun launa til þeirra lægst launuðu hafa náðst. Þar að auki sé kaupmáttarþróunin einstaklega hagstæð, 5,8% kaupmáttaraukning á einu ári er mikil hækkun í sögulegu samhengi. Viðræður fara nú fram um endurskoðun kjarasamninga í upphafi næsta árs og teflir í tvísýnu í því sambandi. Þar er m.a. tekist á um lækkun tryggingargjalds sem aðilum vinnumarkaðar finnst nauðsynleg aðgerð til þess að auka möguleika fyrirtækjanna til launagreiðslna án þess að verðbólga fari úr böndum.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira