Sigmundur Davíð segir Kára yfirgangssegg og besservisser Jakob Bjarnar skrifar 11. desember 2015 08:52 Sigmundur Davíð segir háðskur Kára vita allt og geta öðrum mönnum betur.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra vandar Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar ekki kveðjurnar í aðsendri grein sem birtist í dag, undir yfirskriftinni „Toppari Íslands“. Tilefni skrifa forsætisráðherra eru án nokkurs vafa grein Kára hvar fyrirsögnin er „Einnota ríkisstjórn“ og birtist fyrir skömmu.Hitti „topparann“ í samkvæmi Sigmundur Davíð nefnir Kára aldrei á nafn, kallar hann „Toppara“ og í lýsingum forsætisráðherra má ljóst vera að þar fer ábyrgðarlaus yfirgangsseggur sem lætur staðreyndir ekki þvælast fyrir sér; með öðrum orðum alger besservisser sem veit allt betur en allir aðrir: „En topparar láta staðreyndir eða framtíðina ekki þvælast mikið fyrir sér. Fyrir þá er aðalatriðið að vera maður líðandi stundar, sá sem fangar athyglina og verður vinsæll meðal trúgjarnra um sinn. Aðrir geta séð um að fást við afleiðingarnar,“ skrifar Sigmundur Davíð í lok greinar sinnar. Sigmundur Davíð hefur grein sína á að lýsa manni sem hann rakst á fyrir löngu í samkvæmi. mann sem talaði yfir allt og alla, vissi allt betur en aðrir og taldi sig geta gert öðrum mönnum betur.Yfirgangssamur besservisser „Enginn var betri í viðskiptum en hann en samt var ekki til meiri mannvinur, því hann mátti að eigin sögn ekkert aumt sjá. Það var líka sama hvaða sögur aðrir gestir sögðu, alltaf bætti hann um betur. Hann hafði gert merkilegri hluti, séð meira en aðrir og unnið stærri sigra. Hann taldi sig líka alltaf kunna betri brandara en hinir og sá því enga ástæðu til að leyfa öðrum að ljúka sínum skemmtisögum áður en hann kom með aðra betri. Í hvert sinn sem hann tók orðið var það auk þess gert af yfirlæti og gefið til kynna að allir aðrir en hann væru fábjánar. Þegar reynt var að leiðrétta eina eða tvær af fjölmörgum rangfærslum þessa samkvæmisljóns brást hann hinn versti við og gerði lítið úr þeim sem dirfðust að gera slíkar athugasemdir.“ Sigmundur beinir næst spjótum sínum að hugmyndum Kára um stóraukið framlag til heilbrigðiskerfisins, eða 150 milljarða, en það skjóti skökku við því engin ríkisstjórn hefur aukið framlög til heilbrigðismála sem og sú sem nú situr. Áhugamenn um þjóðfélagsmál ættu ekki að láta þessa grein forsætisráðherra fram hjá sér fara.
Tengdar fréttir Kári hótar ríkisstjórninni 100 þúsund undirskriftum "Söfnunin verður létt verk og löðurmannlegt. Þjóðinni ofbýður,“ segir forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. 10. desember 2015 10:13 Toppari Íslands Fyrir allmörgum árum var ég staddur í samkvæmi þar sem einn af gestunum gerði sig stöðugt meira gildandi. Það var sama hvaða umræðuefni kom upp, alltaf tróð maðurinn sér inn í samtölin (stundum fleiri en eitt í einu) eða talaði yfir fólk til að útskýra að hann vissi meira um málið en aðrir, hann hefði gert hlutina öðruvísi og betur. 11. desember 2015 07:00 Einnota ríkisstjórn Það er orðið lýðum ljóst að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs mun ekki sitja lengur en sem nemur kjörtímabilinu. Ástæðan er margþætt og það á við hér eins og segir í Geirmundarsögu Heljarskinns að: "það renna margir orsakalækir að einum ósi örlaga.“ 10. desember 2015 07:00 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Stuðningur allt of lítill Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Sjá meira
Kári hótar ríkisstjórninni 100 þúsund undirskriftum "Söfnunin verður létt verk og löðurmannlegt. Þjóðinni ofbýður,“ segir forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. 10. desember 2015 10:13
Toppari Íslands Fyrir allmörgum árum var ég staddur í samkvæmi þar sem einn af gestunum gerði sig stöðugt meira gildandi. Það var sama hvaða umræðuefni kom upp, alltaf tróð maðurinn sér inn í samtölin (stundum fleiri en eitt í einu) eða talaði yfir fólk til að útskýra að hann vissi meira um málið en aðrir, hann hefði gert hlutina öðruvísi og betur. 11. desember 2015 07:00
Einnota ríkisstjórn Það er orðið lýðum ljóst að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs mun ekki sitja lengur en sem nemur kjörtímabilinu. Ástæðan er margþætt og það á við hér eins og segir í Geirmundarsögu Heljarskinns að: "það renna margir orsakalækir að einum ósi örlaga.“ 10. desember 2015 07:00