Gætu sparað neytendum 162 milljónir Óli Kristján Ármannsson skrifar 14. desember 2015 07:00 Innflutt snakk úr niðurneiddum kartöflum ber 59 prósenta toll. vísir/stefán
Tollur á snakk er með síðustu dæmum um verndartoll fyrir iðnaðarframleiðslu úr innfluttu hráefni hér á landi. Á þetta bendir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda (FA). Félagið birti nýverið skýrslu um matartolla. Félagið fagnaði skömmu eftir mánaðamótin nefndaráliti meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar þar sem lagt var til að tollar verði felldir niður af snakki. Nú hafi Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokks sem sæti á í nefndinni, sagt að í kjölfar mikilla viðbragða frá innlendum snakkframleiðendum þurfi nefndin að skoða „víðtækari hagsmuni“. Í umfjöllun á vef FA segir að ofurtollar á innflutta matvöru séu yfirleitt réttlættir með því að verið sé að vernda innlenda búvöruframleiðslu. „Það getur ekki átt við um snakktollana. Innlendir snakkframleiðendur, Iðnmark og Þykkvabæjar, anna aðeins litlu broti innanlandsmarkaðar fyrir snakk.“ Í kartöflusnakkið þeirra sé notað lítið sem ekkert af innlendum kartöflum. „Heldur er það eftir því sem næst verður komist að stærstum hluta búið til úr innfluttu kartöflumjöli sem ber lága eða enga tolla.“ Hagsmunir neytenda séu hins vegar umtalsverðir. Niðurfelling 59 prósenta tolls á snakk úr kartöflum myndi spara neytendum 162 milljónir króna.
Mest lesið Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira