Jól

Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 14. desember

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða eru komin aftur. Þau ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Í dag föndra þau stórt jólatré sem hengt er á vegginn. Jólatréð er þó ekki bara skraut heldur er þetta skemmtilegt leikfang um leið sem yngstu krakkarnir hafa gaman af að spreyta sig á.

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.






×