Jólin

Snjókornið

Snjófuglar.
Snjófuglar.

Hér er stutt dæmisaga af vef Karls Sigurbjörnssonar biskups á kirkjan.is. Hún er úr þýsku og birtist fyrst í bókinni Orð í gleði sem Karl tók saman.

„Segðu mér, hvað vegur eitt snjókorn?" spurði þrösturinn dúfuna.

„Minna en ekki neitt," svaraði dúfan.

„Þá verð ég að segja þér undursamlega sögu," sagði þrösturinn.

„Ég sat á bjarkargrein, þétt við stofninn þegar það fór að snjóa. Það var enginn bylur, nei, bara logndrífa, eitt og eitt snjókorn leið af himni, hljóðlega og fyrirhafnarlaust. Og þar sem ég hafði ekkert betra að gera fór ég að telja snjókornin sem féllu á greinina mína og sátu þar eftir. Nákvæmlega þrjármilljónirsjöhundruðfjörutíuogeittþúsund níuhundruðfimmtíuogþrjú talsins. En þegar þrjúmilljónsjöhundruðfjörutíuogeittþúsund níuhundruðfimmtugastaogfjórða kornið féll, brotnaði greinin."

Við það flaug þrösturinn burt.

Dúfan, sem allt frá dögum Nóa var sérfræðingur í þessum málum, sagði hugsandi við sjálfa sig: „Ef til vill vantar aðeins eina mannsrödd til að verði friður á jörðu?"



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×