Umfjöllun og viðtöl: KR - ÍR 89-58 | Upprúllun í borgarslagnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. desember 2015 21:15 Brynjar Þór Björnsson, leikmaður KR. vísir/ernir
ÍR-ingar áttu sinn langversta leik undir stjórn Borce Ilievski er liðið steinlá fyrir KR í Domino's-deild karla í kvöld. Sóknarleikur ÍR var einfaldlega hörmulegur í kvöld en liðið skoraði aðeins 43 stig eftir þrjá og hálfan leikhluta. Þetta var ekki besti leikur KR í kvöld en liðið gerði miklu meira en nóg til að vinna öruggan sigur á Breiðhyltingum og koma sér í átján stig. ÍR er enn með átta. Það er ekki hægt að finna mörg falleg lýsingarorð um fyrri hálfleikinn, sérstaklega annan leikhluta. Staðan að honum loknum var 33-23 og frammistaða leikmanna ekki til útflutnings. Varnarleikurinn var öflugur hjá báðum liðum á köflum, enda sóknarleikurinn ekki til staðar. Craion byrjaði hálfleikinn vel og endaði hann líka vel en hann var sá eini sem skilaði þokkalegum tölum. Hjá KR var hann með 6/11 nýtingu í 2ja stiga skotum í fyrri hálfleik en allir aðrir KR-ingar 2/15. Þetta var lítið skárra hjá ÍR. Bakverðirnir Oddur Rúnar og Björgvin Hafþór voru samanlagt 2/11 í skotnýtingu í fyrri hálfleik. Stóri munurinn á liðunum í fyrri hálfleik voru þó tapðaðir boltar. KR missti hann fjórum sinnum frá sér en ÍR-ingar alls ellefu sinnum og ljóst að jafn gott lið og KR refsa fyrir slík mistök. KR gerði nóg í þriðja leikhluta til að gera út um leikinn. Skoraði 27 stig á meðan að ÍR-ingar voru ekki nálægt því að gera nokkuð að viti í leiknum. Eftir þrjá leikhluta var skotnýting Breiðhyltinga utan af velli 15/52 og liðið búið að skora 39 stig. Tapaðir boltar voru nú orðnir sextán talsins. Aðeins Sveinbjörn Claessen var að skila sómasamlegum tölum - aðrir voru langt, langt frá eðlilegri getu. ÍR hafði skorað 43 stig þegar sex mínútur voru eftir og flestir byrjunarliðsmenn teknir af velli. Sóknarleikur liðsins komst aldrei í gang, svo vægt sé til orða tekið, sem sést best á tölfræði Breiðhyltinga. Oddur Rúnar, Björgvin Hafþór og Mitchell nýttu samtals sjö af 38 skotum sínum í leiknum. Heilt yfir voru ÍR-ingar afar mistækir í kvöld og ljóst að leikurinn í kvöld var einn þeirra allra slakasti í vetur. Sveinbjörn Claessen reyndi að halda liðinu á floti en hann gerir það ekki einn síns liðs. Það var þó viðeigandi að hann var stigahæstur sinna manna með sextán stig. KR-ingar spiluðu ekki sinn besta leik í kvöld. Langt í frá. En þeir gerðu nóg og sigu fram úr á réttum tíma. Craion (21 stig, 12 fráköst) steig upp þegar á þurfti að halda og Darri Hilmarsson (12 stig) skilaði einnig flottum tölum.Tölfræði leiks: KR-ÍR 89-58 (16-14, 17-9, 27-16, 29-19)KR: Michael Craion 21/12 fráköst, Þórir Guðmundur Þorbjarnarsson 16, Darri Hilmarsson 12, Brynjar Þór Björnsson 12, Snorri Hrafnkelsson 10/5 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 7/6 fráköst/7 stoðsendingar, Björn Kristjánsson 5/7 stoðsendingar, Helgi Már Magnússon 3, Vilhjálmur Kári Jensson 3/4 fráköst, Andrés Ísak Hlynsson 0, Arnór Hermannsson 0.ÍR: Sveinbjörn Claessen 16/4 fráköst/6 stoðsendingar, Jonathan Mitchell 15/13 fráköst, Sigurkarl Róbert Jóhannesson 6, Vilhjálmur Theodór Jónsson 6, Daði Berg Grétarsson 3/4 fráköst/6 stoðsendingar, Daníel Freyr Friðriksson 3, Oddur Rúnar Kristjánsson 3/4 fráköst, Trausti Eiríksson 2, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 2/5 fráköst, Eyjólfur Ásberg Halldórsson 2, Sæþór Elmar Kristjánsson 0, Kristján Pétur Andrésson 0.Finnur Freyr: Menn virtust þungir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, segist ánægður með að hafa fengið tvö stig í kvöld þó svo að leikurinn hafi ekki verið sá besti í vetur. „Það var mjög þungt yfir þessu í byrjun og það kom sérstaklega niður á sóknarleiknum,“ sagði Finnur Freyr eftir leikinn í kvöld. Hann segir að menn hafi passað sig á því að pirra sig ekki á hlutum sem gengu illa í kvöld. „Við þurfum bara að halda áfram og festast ekki í vítahring. Við höfum áður tekið þannig kafla í vetur og viljum ekki endurtaka það.“ „Við lentum samt í smá mótlæti í kvöld. Menn eins og Helgi, sem var glimrandi í síðasta leik, var ekki upp á sitt besta í kvöld og menn virtust einfaldlega svolítið þungir.“ „En um leið og við náðum hraðanum aftur upp og fengum nokkrar körfur þá fór þetta að koma.“ Hann segir að það geti vel verið að menn hafi ekki verið með hugann á réttum stað, enda stutt í jólafrí. „Ég hef engar áhyggjur þó svo að við höfum oft spilað betur en í kvöld.“Borce: Vitum hvað Oddur getur Borce Ilievski segir að það hafi margt klikkað í sóknarleik sinna manna en þetta var langversta frammistaða ÍR í sókn eftir að hann tók við liðinu í síðasta mánuði. „Sóknin virkaði ekki. Leikstjórnandinn minn (Oddur) meiddist í vikunni og náði ekki að æfa nógu vel. Það er leikmaður sem skiptir liðið okkar afar miklu máli,“ sagði þjálfarinn en hann hrósaði þó varnarleiknum í fyrri hálfleik. „Við gerðum góða hluti í vörn og það gaf okkur von fyrir síðari hálfleikinn. Við byrjuðum ágætlega í honum en síðan kom í ljós að við náðum ekki að keyra þau kerfi sem við vildum og flæðið í sóknarleiknum ekkert.“ Hann segir að þetta hafi verið slæmt kvöld fyrir allt of marga leikmenn. „Þetta var líklega versti leikur Odds og við vitum allir hversu öflugur hann er öllu jöfnu. Mitchell var einnig langt frá sínu besta og náði sér aldrei almennilega eftir að hafa klikkað á nokkrum skotum í upphafi.“ „Það er nóg fram undan hjá okkur og við þurfum að laga mikið í sóknarleik okkar áður en við spilum næst. En ég óska KR til hamingju með sigurinn - KR spilaði mjög vel.“ Borce útilokaði ekki að ÍR myndi styrkja leikmannahópinn á nýju ári en ætlar sér þó fyrst og fremst að byggja upp liðið á þeim leikmönnum sem hann á. „Við eigum marga erfiða útileiki þegar mótið fer aftur af stað og við þurfum að passa vel á að verja heimavöllinn okkar.“Sveinbjörn: Engin örvænting Sveinbjörn Claessen, fyrirliði ÍR, sagði að hans menn myndu láta tap kvöldsins ekki slá sig af laginu þrátt fyrir að ÍR hafi oft spilað betur en í kvöld. „Það þarf að vera alveg á hreinu að við vorum alls ekki slakir í fyrri hálfleik. Varnleikur okkar í fyrri hálfleik var góður gegn langbesta liði landsins. En það vantaði heilmikið upp á sóknarleikinn okkar,“ sagði Sveinbjörn. „Ég held að þeir hafi náð að slá okkur út af laginu í seinni hálfleik og hugarfarið klikkaði hjá okkur. Það var ekki meira sem þurfti til.“ „Ef eitthvað lið ætlar að eiga möguleika gegn KR þurfa allir að vera klárir frá fyrsta til síðasta manns. Við vorum allir undir meðallagi í kvöld, sérstaklega í síðari hálfleik.“ „En þetta var bara einn leikur af 22 og við ætlum að halda áfram. Það verður ekki tekið af okkur að við höfum verið að spila ágætisbolta eftir að Borce tók við og nýr þjálfari þarf tíma til að sín fingraför á liðið.“ „Jólafríið verður nýtt vel í að betrumbæta ýmsa hluti og er engin örvænting á okkur. Það er bara full ferð áfram.“Tweets by @visirkarfa4
Dominos-deild karla Mest lesið „Endanlegt ippon fyrir Slot“ Enski boltinn Komst ekki í landsleik af því að konan treysti sér ekki til að halda afmæli ein Fótbolti Aðeins of mikið af því góða fyrir Gumma Ben og félaga Fótbolti Slot hugsi: Spyr hvort Salah telji sig hafa gert mistök Enski boltinn Ofsótt af milljarðamæringi Enski boltinn Villarreal - FCK | Hvað gerir Viktor á Spáni? Fótbolti Þrír sem Jökull þolir ekki: „Hann er algjört gerpi“ Enski boltinn Ráðleggur leikmanni United að hætta sóa tíma sínum þar Enski boltinn Sjáðu vítadóminn sem bjargaði Liverpool og mörk úr Meistaradeildinni Fótbolti Dagur til Kanada „aðeins eldri með barn, hund og vini fyrir lífstíð“ Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík - Valur | Toppsætið undir „Ég er yfirleitt ekki með neinn kjaft“ Leik lokið: Ármann 70 - 106 Grindavík | Stórsigur Grindavíkur á lánlausum nýliðum Leik Lokið: Haukar 86 - 92 KR | Nýliðarnir höfðu betur gegn meisturunum Fyrsti sigur Hamars/Þórs kom gegn Keflavík Tindastóll með fellu gegn Keilu í Eistlandi Söguleg frammistaða á Extra-leikunum: „Ég get ekki svekkt mig á þessu“ „Hann er ekkert eðlilega mikilvægur “ Rekinn út úr húsi vegna viðbragða þegar mótherji ætlaði að hlera leikhléið „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 118-67 | Toppliðið tekið til slátrunar Tryggvi reif til sín flest fráköst Ármann - Þór Þ. 110-85 | Ármenningar komnir á blað Var að fara að spila fyrsta landsleikinn fyrir Ísland þegar hann sleit „Álftanes er með dýrt lið” Blikar unnu í Grafarvogi og fimm lið eru jöfn á toppnum Uppgjörið:Keflavík - KR 104-85| Auðvelt hjá Keflavík - Vandræði KR halda áfram Uppgjör: Tindastóll-ÍA 102-87 | Stólarnir unnu bangsaleikinn Uppgjörið: Valur - Njarðvík 94-86 | Valur átti síðasta áhlaupið og tryggði sér sigurinn Uppgjör: ÍR-Álftanes 97-86 | Skoruðu tíu fleiri þrista Sjáðu böngsunum rigna í Síkinu í kvöld Frumsýna skemmtilegan gæðaleikmann í Breiðholti Spenna í Dalnum fyrir nýjum Kana 19 ára og 1.300 leikja hrina Lebrons á enda „Ég er alveg jafn ringlaður og í áfalli og þið, og allur heimurinn“ Hilmar með fínan leik í bikarsigri Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 95-74| Aldrei í hættu hjá Njarðvíkingum Botnlið Hamars/Þórs nálægt sigri í Grindavík Böngsum mun rigna á Króknum á föstudaginn Sjá meira