„Ómannúðlegt að ætlast til að menn séu edrú alla daga á þessu þingi“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. desember 2015 10:01 Brynjar Níelsson á góðri stundu í þingsal ásamt skellihlæjandi Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Vísir/Vilhelm
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sér spaugilegu hliðina á uppákomunni í þingsal á miðvikudagskvöldið þegar Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sakaði þingmann um að vera undir áhrifum í umræðum um fjárlög. Kona hans hafi fengið fyrir hjartað þegar hún heyrði ræðu Lilju Rafneyjar. „Það er ekki hægt að láta bjóða sér það að menn séu flissandi hérna úti í sal undir áhrifum,“ sagði Lilja Rafney sem ekki hefur viljað upplýsa um hvaða þingmann ræddi. Hún vonar þó að umræddur þingmaður hugsi sinn gang. „Það er ekki hægt að láta bjóða sér það að menn séu flissandi hérna úti í sal undir áhrifum,“ sagði Lilja Rafney í ræðustól Alþingis í gær.Vísir/Vilhelm„Áburðarþingmaður“ ósáttur við áburð Þorsteinn Sæmundsson lýsti því yfir í gær að hann myndi taka málið upp hjá forsætisnefnd drægi Lilja Rafney ekki orð sín til baka eða upplýsti um hvern ræddi. Annars lægju allir undir grun.Sjá einnig:Brandarinn um Brynjar sem Össur þorði ekki að segja í skötuveislu Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins sem talað hefur fyrir byggingu og rekstri ríkisins á áburðarverksmiðju, sagði áburð Lilju Rafneyjar óþolandi. „Því allt þetta bull sem hér fer fram, gott og slæmt, fer í fundargerðir Alþingis og ég kæri mig ekki um að barnabörnin mín komi hingað einhvern tímann, lesi fundargerðirnar og hugsi: „Afi gamli var fullur í þessum sal.“,“ sagði Þorsteinn.Þorsteinn vill ekki sitja undir ásökunum um að hann eða aðrir saklausir þingmenn hafi verið undir áhrifum í gærkvöldi.visir/daníelBrynjar bar af sér sakir Brynjar er öllu léttari í hjali en kollegi hans hjá Framsóknarflokknum. Færsla hans á Facebook frá því í gærkvöldi hefur vakið mikla athygli. „Af því að ég hef enga ólyst á víni fékk frúin sting fyrir hjartað þegar hún sat fyrir framan skjáinn og horfði á Lilju Rafneyju flytja tímamótaræðu á þinginu í gærkveldi,“ sagði Brynjar. Sem neitaði sök. „Ég bar af mér sakir þegar heim kom en lét þó fylgja að það væri ómannúðlegt að ætlast til að menn séu edrú alla daga á þessu þingi.“
Tengdar fréttir Lilja Rafney vonar að hífaði þingmaðurinn hugsi sinn gang „Mér finnst bara að svona hlutir eigi ekki að vera með þessum hætti,“ segir þingmaður Vinstri grænna. 17. desember 2015 10:42 „Held að viðkomandi hafi algjörlega skilið sneiðina og tekið það til sín“ „Það snöggfauk í mig í hita leiksins þegar ég lét þessi orð falla," segir Lilja Rafney Magnúsdóttir. 17. desember 2015 20:44 Segir þingmann í salnum undir áhrifum „Það er ekki hægt að láta bjóða sér það að menn séu flissandi hérna úti í sal undir áhrifum,“ sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir. 16. desember 2015 19:51 Þorsteinn Sæmundsson: „Svona áburður er óþolandi“ Þingmaður Framsóknarflokksins vill ekki að barnabörn sín haldi að "afi gamli hafi verið fullur“. Allir þingmenn liggi undir grun. 17. desember 2015 11:17 Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Spurning með sálina Innlent Fleiri fréttir Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Sjá meira
Lilja Rafney vonar að hífaði þingmaðurinn hugsi sinn gang „Mér finnst bara að svona hlutir eigi ekki að vera með þessum hætti,“ segir þingmaður Vinstri grænna. 17. desember 2015 10:42
„Held að viðkomandi hafi algjörlega skilið sneiðina og tekið það til sín“ „Það snöggfauk í mig í hita leiksins þegar ég lét þessi orð falla," segir Lilja Rafney Magnúsdóttir. 17. desember 2015 20:44
Segir þingmann í salnum undir áhrifum „Það er ekki hægt að láta bjóða sér það að menn séu flissandi hérna úti í sal undir áhrifum,“ sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir. 16. desember 2015 19:51
Þorsteinn Sæmundsson: „Svona áburður er óþolandi“ Þingmaður Framsóknarflokksins vill ekki að barnabörn sín haldi að "afi gamli hafi verið fullur“. Allir þingmenn liggi undir grun. 17. desember 2015 11:17