Stofn flugnabænda í Bolungarvík drapst Svavar Hávarðsson skrifar 19. desember 2015 08:00 Ræktun fóðurskordýra er svar við fóðurþörf sem fylgir vaxandi fiskeldi. nordicphotos/afp
Víur, ræktunarfélag fóðurskordýra, á Bolungarvík varð fyrir því óhappi á árinu að flugurnar sem félagið byggði starfsemi sína á drápust allar í vor, og gerðist það á þeim tíma þegar stofninn var sá eini á landinu. Því þurfti að flytja nýjan stofn inn til landsins. Hefur undirbúningur innflutningsins tekið töluverðan tíma vegna kvaða um sóttkví og innflutningsleyfi. Þessar upplýsingar koma fram á heimasíðu fyrirtækisins þar sem er jafnframt tíundað að úr flugunni, eða lirfum svörtu hermannaflugunnar, verður unnið lirfumjöl fyrir eldisfisk. Ræktun þeirra á Íslandi er að sögn aðstandenda fyrirtækisins með öllu örugg og engar líkur á að flugan geri sig heimakomna í íslenskri náttúru eða geri usla í mönnum eða dýrum. Flugurnar sem fluttar eru inn koma úr stofni sem hefur verið í áraraðir vottaður sem laus við óværu og sjúkdóma. „Óhappið undirstrikar mikilvægi þess að hafa að minnsta kosti tvo aðskilda stofna á lífi á hverjum tíma, og verður það fyrirkomulag að sjálfsögðu viðhaft þegar sóttkvínni á hinum nýja stofni verður aflétt,“ segir Gylfi Ólafsson, flugnabóndi og annar stofnenda. Tilraunaræktun hófst í Bolungarvík haustið 2014. Í frétt fyrirtækisins segir að Vestfirðir séu ákjósanlegir fyrir starfsemina. Á svæðinu fellur til mikið af lífrænum úrgangi sem væri hægt að nýta í stað þess að flytja hann til annarra landshluta eins og gert er nú. Fiskeldi á svæðinu er mikið og fer vaxandi og þekking á öllum þáttum fiskeldis eykst óðfluga. Förgunarkostnaður og flutningskostnaður á fiskifóðri mun minnka snarlega. Þá er hægt að nýta ódýrt húsnæði í uppbyggingarferlinu, segja flugnabændur.
Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Þakplötur og trampólín á flugi Innlent Fleiri fréttir 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð viðkvæm Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Þakplötur og trampólín á flugi Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Borgarverk með lægsta boð í Þjórsárbrú og Búðafossveg Meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns til ákæranda Sjöfalt fleiri útköll en sami fjöldi sérsveitarmanna Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Sjá meira