KSÍ leitar aðstoðar til að koma í veg fyrir misnotkun vörumerkja Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. desember 2015 10:00 Kvennalandsliðið fagnar hér marki Dagnýjar Brynjarsdóttur á móti Hvíta Rússlandi. Vísir/Vilhelm
Knattspyrnusamband Íslands hefur samið við auglýsingastofuna PIPAR\TBWA um að fyrirtækið gæti hagsmuna KSÍ og sinni vöktun á vörumerkjum sambandsins fram yfir úrslitakeppni Evrópumóts karla í Frakklandi næsta sumar. Borið hefur á því að aðilar ótengdir KSÍ hafi nýtt sér vörumerki sambandsins, þar með töldum landsliðsbúningum, merki sambandsins eða leikmenn klæddir í landsliðsbúning, í auglýsingaskyni. „Aðdragandinn að þessu hefur verið tiltölulega langur,“ segir Ómar Smárason, leyfis- og markaðsstjóri hjá KSÍ. „Við höfum fundið fyrir þessu í meira mæli síðustu tvö til þrjú ár eða síðan karlalandsliðinu fór að ganga svona vel.“ Ómar Smárason fyrir miðju ásamt Frey Alexanderssyni, landsliðsþjálfara kvenna (t.v.) og goðsögninni Sigurði „Dúllu“ Þórðarsyni, liðsstjóra.Vísir/Daníel Hann segir í flestum tilfellum séu aðilar að gera þetta óvart og átti sig hreinlega ekki á því að um skrásett vörumerki sé að ræða. KSÍ hafi í gegnum tíðina haft samband við viðkomandi aðila og bent þeim á brot þeirra. Því hefur nánast alltaf verið mætt af skilningi og með afsökunarbeiðni. Auglýsingin hefur svo verið tekin út. „Í vörumerkjunum eru verðmæti og við erum að taka aðeins formlegra skref til að verja verðmætin fyrir okkur og ekki síður samstarfsaðila okkar. Við teljum þetta vera skref upp á við í fagmennsku og væntumst mikils af samstarfinu.“ Ómar segir KSÍ einfaldlega ekki hafa mannskap til að vakta markaðinn sjálf og því hafi verið leitað til auglýsingastofunnar.
Mest lesið Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira