Jól

Þarf ekki að vera neitt ótrúlega flókið

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Árelía Dröfn, Daði, Íris Elma og Benjamín ásamt jóladagatalinu góða.
Árelía Dröfn, Daði, Íris Elma og Benjamín ásamt jóladagatalinu góða. Vísir/AntonBrink
„Við fengum þessa hugmynd í fyrra þegar okkur langaði að gera eitthvað öðruvísi,“ segir Daði Guðjónsson um jóladagatalið sem hann föndraði fyrir börnin sín ásamt konu sinni en flestir ættu að kannast við jóladagatöl í ýmsu formi sem notað er til þess að telja niður dagana fram að jólum.

Dagatalið sem hér um ræðir er ekki uppfullt af súkkulaðimolum eða litlum gjöfum heldur er lítill poki áfastur hverjum degi sem geymir hugmynd að afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.

Hann segir hugmyndirnar hvorki dýrar né flóknar í framkvæmd heldur sé það einmitt samveran með fjölskyldunni sem sé einmitt það einna mikilvægasta við aðventuna og jólin.

„Það getur verið hvað sem er. Bara eitthvað sem er örlítið út frá vananum og pínu spennandi.“ Hann segir börnin hæstánægð með dagatalið og að ekki ríki minni ánægja á meðal foreldrana. „Við foreldrarnir erum alveg næstum því meira spennt heldur en krakkarnir,“ segir hann glaður í bragði.

Daði segir að ekki hafi tekið langan tíma að rigga dagatalinu upp og það sé algjör óþarfi fyrir aðra áhugasama að mikla það fyrir sér.

„Þetta er bara skemmtilegt. Þetta var bara ein kvöldstund með konunni og við fórum yfir hvað við gætum gert. Það er svo margt í boði í kringum mann sem maður áttar sig ekki á og kostar ekki mikið,“ segir hann og bætir að lokum við: „Þetta þarf ekkert að vera eitthvað ótrúlega flókið, krökkunum finnst bara gaman að eyða tíma saman.“

Hugmyndir að afþreyingu

Fara í ísbíltúr

Fara á sleða

Gera piparkökuhús

Skautasvellið á Ingólfstorgi eða kíkja í Skautahöllina

Fara á bókasafnið

Horfa á jólamynd og eiga kósýkvöld

Dekurdagur hjá ömmu og afa








×