Taka upp leikjavædda heilsueflingu Samúel Karl Ólason skrifar 10. nóvember 2015 19:54 Frá undirritun Sidekick og RB.
Reiknistofa bankanna er fyrsta fyrirtækið til að taka upp íslenska leikjavædda heilsueflingu. Heilsulausnin er hönnuð af Sidekick Health fyrir fyrirtæki og til að efla heilsu og vellíðan starfsfólks. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að langvinnir lífstílstengdir sjúkdómar, eins og offita, sykursýki 2 og hjartasjúkdómar, valdi 86 prósentum af dauðsföllum í Evrópu. Hlutfallið er 68 prósent á heimsvísu. Þá má rekja gífurlega kostnað hins opinbera til langvinnra lífstílstengdra sjúkdóma. Starfsmenn RB munu fá aðgang að appinu Sidekick. Þar má finna leiki og keppnir á milli starfsmanna. Hægt er að nota appið til heilsueflingar einstaklinga og skipta starfsfólki niður í lið innan fyrirtækis og byggja upp stemningu. „Við leggjum mikla áherslu á að vera stöðugt að efla heilsu starfsfólks RB með því að bjóða upp á ýmis konar fræðslu, þjálfun og þjónustu,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðsmála og samskipta hjá RB. „Við bjóðum meðal annars upp á heilsumælingar, bólusetningar, jakkafatajóga, nudd og ýmislegt annað. Við lítum á þetta sem hluta af því að skapa eftirsóknarverðan vinnustað, sem og okkar samfélagslegu ábyrgð. Við erum afar spennt yfir samstarfinu við Sidekick og hlökkum mikið til að fara af stað að nota appið, sérstaklega liðakeppnina. Við bindum miklar vonir við notkun appsins og gaman verður að sjá árangursmælingar þegar við höfum notað það í einhvern tíma til dæmis hvort heilsumælingar komi betur út eða að veikindadögum hafi fækkað. Fyrir utan ávinninginn þá teljum við þetta mjög ferska nálgun og hafa mikið skemmtanagildi fyrir starfsfólk.“ „Ég starfaði sem læknir, meðal annars við að meðhöndla lífstílstengda sjúkdóma en um 70-80% af öllum heilbrigðiskostnaði í Evrópu má rekja til langvinnra lífstílstengdra sjúkdóma og eru því hagsmunirnir miklir,“ segir Tryggvi Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Sidekick. „Ég ákvað að venda kvæði mínu í kross og reyna að fyrirbyggja lífstílstengdu sjúkdómana og tók meistaragráðu í lýðheilsufræðum frá Harvard. Í kjölfarið stofnaði ég Sidekick og er það ótrúlega gaman að sjá 3ja ára þróunarvinnu fara í loftið með þessu samstarfi við RB. Við höfum fulla trú á því að við séum með lausn í höndunum sem á eftir að efla lýðheilsu fólks til lengri tíma.“
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira