Evrópskir fjárfestar skoða Arionbanka Höskuldur Kári Schram skrifar 12. nóvember 2015 18:30
Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arionbanka finnur fyrir miklum áhuga hjá evrópskum fjárfestum að kaupa hlut í bankanum. Hann telur mikilvægt að stefna að fjölbreyttu eignarhaldi á íslenskum fjármálafyrirtækjum og að það sé ekki gott fyrir markaðinn að ríkið fari með stóran eignarhluta. Arionbanki hagnaðist um 25,4 milljarða á fyrstu níu mánuðum þessa árs samkvæmt árshlutareikningi sem var kynntur í dag. Hagnaður jókst um tæpa þrjá milljarða miðað við sama tímabil í fyrra. Nokkrir fjárfestahópar hafa sýnt áhuga á því að kaupa bankann og hafa þeir meðal annars verið í óformlegum viðræðum við slitastjórn Kaupþings vegna málsins. Höskuldur Ólafsson bankastjóri Arionbanka segist einnig finna fyrir miklum áhuga hjá evrópskum fjárfestum sem vilja kaupa hlut í bankanum. „Við höfum orðið þess áskynja að fólk hefur áhuga og hefur fundist áhugavert það sem við höfum verið að gera. Það er búið að gera feykilega marga góða hluti í þessum banka á undanförum árum og þessu fjármálakerfi yfir höfuð á Íslandi sem hefur vakið eftirtekt. Þannig að ég er ekki hissa að menn skoði þetta vel,“ segir Höskuldur. Hann segir æskilegt að stefna að fjölbreyttu eignarhaldi á íslenskum fjármálafyrirtækjum og það sé kostur að fá inn erlenda aðila. „Ég held að það skipti miklu máli að eignarhaldið verði ekki einsleitt í öllum bönkunum. Betra að það verði sem mest breidd og endilega að sjá einhverja útlendinga,“ segir Höskuldur. Ríkið mun væntanlega taka yfir íslandsbanka sem hluta af stöðugleikaframlagi kröfuhafa Glitnis. Höskuldur telur æskilegt að ríkið selji bankann eins fljótt og kostur er.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira