Gæsluvarðhald staðfest yfir manni sem er grunaður um kynferðisbrot í tjaldi í Hrísey Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. nóvember 2015 16:51 Meint brot mannsins áttu sér stað á tjaldstæðinu í Hrísey. vísir/friðrik
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir karlmanni á þrítugsaldri sem grunaður er um líkamsáras og tilraun til nauðgunar gegn sautján ára stúlku á tjaldsvæðinu í Hrísey þann 25. júlí sl. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald 11. nóvember sl af Héraðsdómi Norðurlands eystra þegar niðurstöður úr DNA-rannsóknum lágu fyrir. Hann kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. Stúlkan var ferðamaður hér á landi. Hún greindi lögreglu frá því að hún hefði sofnað um miðnætti þá nótt sem atvikin áttu sér stað. Hún hefði svo vaknað um nóttina við að karlmaður hefði verið kominn inn í tjaldið til hennar. Samkvæmt frásögn hennar beitti hann hana valdi, hótaði henni og reyndi að hafa við hana samfarir og haft sáðfall.Sæði úr bakpoka stúlkunnar reyndist vera úr manninum.Karlmaðurinn sem nú hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald var handtekinn 25. júlí á heimili sínu. Þar fann lögregla fatnað sem samrýmdist lýsingu brotaþola. Á hendi eða fingri sakbornings var áverki sem lögregla telur að geti samsvarað því að hann hafi verið bitinn en stúlkan hafði lýst því fyrir lögreglu að hún hefði náð að bíta manninn í aðra höndina. Gerð var DNA-rannsókn á sæði sem fannst á eða í svefnpoka stúlkunnar. Þrjú sýni voru send til rannsóknar og leiddi hún í ljós að sæðið reyndist vera úr manninum og taldi lögreglan því sterkan grun um að karlmaðurinn hefði framið það brot sem hann er sakaður. Karlmaðurinn verður því í gæsluvarðhaldi til 10. desember en að mati lögreglunnar á Norðurlandi Eystra þykja ríkir almannahagsmunir standa til þess að maður sem sterklega er grunaður um svo alvarlegt brot gangi ekki laus.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira