Sýknaður af ákæru um nauðgun eftir árshátíð Birgir Olgeirsson skrifar 18. nóvember 2015 16:53 Héraðsdómur Suðurlands er á Selfossi. Vísir/Pjetur
Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað karlmann sem var sakaður um að hafa nauðguð stúlku þegar hún var tæplega átján ára gömul árið 2014. Í ákærunni var maðurinn sakaður um að hafa haft kynferðismök við stúlkuna þrátt fyrir neitun hennar þar um auk þess sem hann var sakaður um að hafa notfært sér að stúlkan gat ekki spornað við kynferðismökum sökum ölvunar og svefndrunga. Maðurinn og stúlkan voru vinnufélagar á umræddum tíma og gistu á hóteli ásamt öðrum starfsmönnum í tilefni árshátíðar fyrirtækisins sem þau störfuðu hjá. Lögreglu barst tilkynning frá starfsmanni hótelsins um ætlaða nauðgun. Þegar lögregla kom á staðinn var stúlkan fyrir innan afgreiðsluborð hótelsins ásamt starfsmanni hótelsins. Í frumskýrslu lögreglu segir að brotaþoli hafi sýnilega verið í miklu áfalli og átt erfitt með að greina frá atvikum. Stúlkan hafi gefið lögreglu stutta frásögn og kvaðst hafa vaknað við að maðurinn hafi verið að eiga við sig og síðan hafi hann nauðgað henni. Héraðsdómur Suðurlands ákvað að sýkna manninn af ákærunni því dómnum þótti slíkur vafi vera á því hvort maðurinn hafi af ásetningi framið það brot sem honum er gefið að sök. Er þar vísað til neitunar mannsins um að samræði eða önnur kynmök hafi farið fram gegn vilja stúlkunnar. Þá var einnig tilgreint að maðurinn hefði sinnt kalli stúlkunnar um að koma til hennar, í framhaldi af því fylgt henni inn í hennar herbergi, og átt í nánum kynferðislegum samskiptum þeirra í milli með samþykki stúlkunnar, eins og lýst var fyrir dómnum sem lesa má hér.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira