Hagnaður Reita tæplega þrefaldaðist milli ára Sæunn Gísladóttir skrifar 19. nóvember 2015 17:46 Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita. Vísir/Daníel Rúnarsson
Rekstrarhagnaður Reita nam 4.715 milljónum á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 og hækkaði um rúmar 200 milljónir milli ára. Hagnaður tímabilsins nam 5,2 milljörðum, samanborið við 1,8 milljarð árið 2014. Hagnaðurinn tæplega þrefaldaðist því milli ára. Eigið fé í lok tímabilsins nam 45 milljörðum króna og hækkaði um rúma fimm milljarða milli ára. Eiginfjárhlutfall var 40,5 prósent í lok timabilsins, samanborið við 39,1 prósent árið 2014. Vaxtaberandi skuldir námu 58 milljörðum, samanborið við 55 milljarða árið 2014.„Rekstur Reita var á nokkuð lygnum sjó á þriðja ársfjórðungi og er það mat stjórnenda að afkoma fyrstu níu mánaða ársins hafi verið í samræmi við áætlanir félagsins.Ein markverðustu tíðindin úr rekstri Reita á síðustu mánuðum urðu þegar ákveðið var að ganga til samninga við eigendur fasteignasjóðanna SRE I og SRE II sem eru í rekstri Stefnis hf., um kaup Reita á tilteknum fasteignafélögum. Heildarvirði kaupanna er nálægt átján milljörðum króna og stækkar eignasafn félagsins um 9% í fermetrum talið en virði eykst í kringum 17%.Kaupin falla vel að eignasafni félagsins og fjárfestingarstefnu þess, samræmast vel þeim markmiðum sem félagið hefur sett sér varðandi fjármagnsskipan til framtíðar og arðsemi. Unnið er að afléttingu fyrirvara vegna kaupanna með framkvæmd áreiðanleikakannana og könnun á samþykki Samkeppniseftirlits fyrir viðskiptunum,“ segir Guðjón Auðunsson, forstjóri í tilkynningu.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira