Björgunarbáturinn losnaði ekki af Perlu Samúel Karl Ólason skrifar 3. nóvember 2015 15:31 Til stendur að ná Perlu upp og hófust aðgerðir í morgun. Vísir/E.ÓL.
Björgunarbátur sanddæluskipsins Perlu, sem sökk í Reykjavíkurhöfn í gær, blés ekki út þegar skipið sökk. Það að báturinn hafi ekki blásið út er hluti af rannsókn Rannsóknarnefndar samgönguslysa sem athugar hvers vegna skipið sökk. Fyrr á árinu lét einn maður lífið í sjóslysi í Ísafjarðardjúpi þegar Jón Hákon BA sökk. Þá blésu tveir björgunarbátar sem þar voru ekki upp.Sjá einnig: Sjómannasamtök krefjast þess að Jón Hákon BA 60 verði sóttur af hafsbotni Við bryggjukantinn þar sem Perla sökk eru um sjö metrar niður á botn á stórstreymisfjöru en um níu metrar í meðalsjó. Í Skipaskrá er Perla sögð rista fjóra metra en ljóst er að björgunarbáturinn er hærra en það. Þó er ljóst að björgunarbáturinn fór nokkra metra á kaf, en losnaði ekki.Sjá einnig: Sleppibúnaður veitir sjómönnum falskt öryggi Yfirleitt hefur verið talað um að lokar björgunarbátanna eigi að losna á fjögurra metra dýpi, en þó hafa þeir blásið út á bæði minna og meira dýpi. Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarnefnd Samgönguslysa er þetta eitt af því sem skoðað verður í rannsókninni vegna atviksins. Hve mikinn þrýsting lokarnir þurfa til að losna og á hve miklu dýpi björgunarbáturinn á Perlu var. Til stendur að ná Perlu upp og hófust aðgerðir í morgun. Reiknað er með að það muni taka nokkra daga.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira