Glamour

Stjörnum prýddur tískupallur fyrir H&M og Balmain

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Sænski verslanarisinn Hennes & Mauritz og tískuhúsið fræga Balmain blésu til tískuveislu í New York í gærkvöldi þar sem samstarfslína þeirra var frumsýnd á tískupallinum. 

Frægustu fyrirsætur heims í dag á borð við Gigi og Bella Hadid, Karlie Kloss, Joan Smalls, Kendall Jenner og Maria Borges voru meðal þeirra sem þrömmuðu tískupallinn klæddar í glæsilega fatalínu Olivier Rousteing fyrir Balmain og H&M. 

Fatalínan er vel heppnuð - litapallettan er skemmtileg með svörtum og hvítum blandað saman við dökkgrænan, kóngabláan, rauðan og gulan auk gull, silfur og pallíettum. 

Kvenlegir kjólar, víðar buxur, aðsniðnar yfirhafnir og áberandi fylgihlutir eru meðal þess sem má finna í línunni sem eflaust verður slegist um þegar hún kemur í búðir þann 5.nóvember næstkomandi, allavega smellapassar þetta allt í jólafataskápinn svo ekki sér meira sagt. 


Karlie Kloss.
Kendall Jenner.
Gigi Hadid.
Joan Smalls.
Katrin Thorman.
Maria Borges.

Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.

Tengdar fréttir

Systraþema hjá Balmain

Tískuhúsið fékk Jenner, Hadid og Smalls systurnar til liðs við sig.






×