Leggja fram tillögu um bann við samviskufrelsi á kirkjuþingi Birgir Olgeirsson skrifar 23. október 2015 22:23 Séra Guðrún Karls Helgudóttir er á meðal þeirra sem leggja fram tillögu á kirkjuþingi sem miðast að því að prestum verði meinað að mismuna fólki eftir kynhneigð. Vísir
Kirkjuþing verður sett í Grensáskirkju á morgun og verður þar lögð fram tillaga um að prestum verði meinað um að mismuna fólki eftir kynhneigð. Varðar tillagan svokallað samviskufrelsi sem verður líklegast til umræðu á þessu kirkjuþingi en þar munu meðal annarra flytja ávörp við setningu þingsins Agnes M. Sigurðardóttir biskup og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í fjarveru Ólafar Nordal innanríkisráðherra sem er á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Að tillögunni standa prestarnir séra Guðrún Karls Helgudóttir og séra Vigfús Bjarni Albertsson ásamt Ragnheiði Ástu Magnúsdóttur, Guðbjörgu Arnardóttur og Höllu Halldórsdóttur sem eiga sæti á kirkjuþingi. Þingið skipa 12 vígðir einstaklingar, ýmist prestar eða djáknar, ásamt 17 manns úr sóknarnefndum. Alls sitja því 29 manns þingið og þarf yfir 50 prósent atkvæða til að fá tillögu samþykkta. Guðrún segist vongóð um að tillagan hljóti jákvæð viðbrögð á þinginu. „Ég tel að þetta fljúgi í gegn,“ segir Guðrún í samtali við Vísi um málið. Verði tillagan samþykkt segir Guðrún að ljóst sé að vilji yfir stjórnar kirkjunnar sé á þá leið að um presta gildi það sama og um borgaralega vígslumenn. „Það er að segja; við fáum ekki að neita fólki um þjónustu vegna kynhneigðar.“ Kirkjuþingið verður sett klukkan níu á morgun en að lokinni setningarathöfninni, sem er opin öllum, hefst þingfundur klukkan ellefu. Guðrún á frekar von á því að tillagan verði tekin fyrir á sunnudag.
Tengdar fréttir Margir vilja neita samkynja pörum Dómsmálaráðherra Texas, næstfjölmennasta fylkis Bandaríkjanna, segir niðurstöðu hæstaréttar þar í landi lögleysu. Opinberir starfsmenn fá ókeypis lögfræðing ef þeir neita samkynja pörum um þjónustu. 30. júní 2015 09:00 Kirkjuþing með hreina samvisku „Af samvisku presta“ nefnist grein sem birtist í Fréttablaðinu 19. mars síðastliðinn og varð Kirkjuþingi unga fólksins hvati til að vekja athygli á samviskufrelsi presta og þeirri mismunun á grundvelli kynhneigðar sem í henni felst. 26. maí 2015 07:00 Öll jöfn að hjúskaparlögum Hart hefur verið deilt á presta Þjóðkirkjunnar vegna heimildarinnar til að gefa saman hjón. Það hefur verið réttmæt gagnrýni í ljósi þess að Íslendingar vilja vera til fyrirmyndar í mannréttindabaráttu. Það hefur líka verið réttmætt í ljósi þess að þjónusta prestanna krefst þess að þeir mæti hverjum einstaklingi á sama hátt og Jesús gerði 3. október 2015 07:00 Hið meinta samviskufrelsi Það er skilningur okkar og sannfæring byggð á upplýstri samvisku, að kirkjan geti aldrei meinað tveimur einstaklingum um hjónavígslu á grundvelli kynhneigðar uppfylli þeir lögformleg skilyrði þess að ganga í hjúskap. 1. október 2015 07:00 Hjónabandið, frelsið og þjóðkirkjan Í Fréttablaðinu 14. maí sl. er frétt um samþykkta tillögu kirkjuþings unga fólksins um "að reglur þær sem nú eru í gildi um samviskufrelsi presta sem heimila prestum að neita fólki um þjónustu á grundvelli kynhneigðar verði afnumdar“ eins og segir í tillögunum. 22. maí 2015 07:00 Samviskufrelsi presta verði afnumið hjá Þjóðkirkjunni Prestar mega neita samkynja pörum um hjónavígslu á grundvelli sinnar eigin samvisku. Sigurvin Lárus Björnsson æskulýðsprestur segir stöðuna slæma. 14. maí 2015 10:30 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
Margir vilja neita samkynja pörum Dómsmálaráðherra Texas, næstfjölmennasta fylkis Bandaríkjanna, segir niðurstöðu hæstaréttar þar í landi lögleysu. Opinberir starfsmenn fá ókeypis lögfræðing ef þeir neita samkynja pörum um þjónustu. 30. júní 2015 09:00
Kirkjuþing með hreina samvisku „Af samvisku presta“ nefnist grein sem birtist í Fréttablaðinu 19. mars síðastliðinn og varð Kirkjuþingi unga fólksins hvati til að vekja athygli á samviskufrelsi presta og þeirri mismunun á grundvelli kynhneigðar sem í henni felst. 26. maí 2015 07:00
Öll jöfn að hjúskaparlögum Hart hefur verið deilt á presta Þjóðkirkjunnar vegna heimildarinnar til að gefa saman hjón. Það hefur verið réttmæt gagnrýni í ljósi þess að Íslendingar vilja vera til fyrirmyndar í mannréttindabaráttu. Það hefur líka verið réttmætt í ljósi þess að þjónusta prestanna krefst þess að þeir mæti hverjum einstaklingi á sama hátt og Jesús gerði 3. október 2015 07:00
Hið meinta samviskufrelsi Það er skilningur okkar og sannfæring byggð á upplýstri samvisku, að kirkjan geti aldrei meinað tveimur einstaklingum um hjónavígslu á grundvelli kynhneigðar uppfylli þeir lögformleg skilyrði þess að ganga í hjúskap. 1. október 2015 07:00
Hjónabandið, frelsið og þjóðkirkjan Í Fréttablaðinu 14. maí sl. er frétt um samþykkta tillögu kirkjuþings unga fólksins um "að reglur þær sem nú eru í gildi um samviskufrelsi presta sem heimila prestum að neita fólki um þjónustu á grundvelli kynhneigðar verði afnumdar“ eins og segir í tillögunum. 22. maí 2015 07:00
Samviskufrelsi presta verði afnumið hjá Þjóðkirkjunni Prestar mega neita samkynja pörum um hjónavígslu á grundvelli sinnar eigin samvisku. Sigurvin Lárus Björnsson æskulýðsprestur segir stöðuna slæma. 14. maí 2015 10:30