ASÍ spáir 3,8 prósent verðbólgu árið 2016 Sæunn Gísladóttir skrifar 29. október 2015 15:41 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
Samkvæmt nýrri spá hagdeildar ASÍ má gera ráð fyrir 3,8 prósent verðbólgu árið 2016. ASÍ spáir svo 3,5 prósent verðbólgu árið 2017. Hagdeildin spáir því að umsvif í hagkerfinu muni vaxa hratt á næstu árum, verðbólga muni fara yfir markmið Seðlabankans og hætta á ofhitnun í hagkerfinu mun aukast gangi spá hagdeildar eftir. Góður hagvöxtur verður næstu tvö árin. Hagvöxturinn verður drifinn áfram af vexti þjóðarútgjalda, þar sem einkaneysla og fjárfestingar vaxa mikið og gangi spáin eftir fara fjárfestingar yfir 20 prósent af landsframleiðslu á spátimanum. ASÍ spáir 4,3 prósent aukningu í landsframleiðslu árið 2015, 4,1 prósent árið 2016 og 3,3 prósent árið 2017. ASÍ telur mikilvægt við núverandi aðstöður í hagkerfinu að ríki og sveitarfélög sýni aðhald í rekstri en sú sé ekki raunin. Mikilvægt sé að rjúfa þann vítahring að hver hópur á vinnumarkaði hefur farið fram og reynt að rétta sinn hlut óháð því hvaða áhrif slíkt hefði á aðra hópa eða hagkerfið. Jafna þarf stöðu ólíkra hópa á vinnumarkaði og vinna að því að launahækkanir samræmist efnahagslegum stöðugleika til lengri tíma. Spá ASÍ byggir á þeirri forsendu að það takist, ef ekki verða verðbólguhorfur mun lakari en í spánni. Spáin gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði 3,1 prósent 2015, 3 prósent 2016 og 2,9 prósent 2017. Einnig er spáð áframhaldandi aukningu ferðamenna hér á landi. Því er ólíklegt að innlent vinnuafl geti að öllu leyti mætt aukinni eftirspurn eftir vinnuafli, t.d. í mannvirkjagerð og ferðaþjónustu.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira