Viðskipti innlent

Kökusjoppa opnar úti á Granda á morgun

Sæunn Gísladóttir skrifar
Auður Ögn Árnadóttir er eigandi 17 sorta.
Auður Ögn Árnadóttir er eigandi 17 sorta. Vísir/Auður Ögn
Kökusjoppan 17 Sortir opnar á morgun. Á boðstólum verður úrval 17 sorta af bollakökum, hnallþórum, ostakökum, marengsbombum, smákökum og formkökum. Sjoppan er í eigu Auðar Agnar Árnadóttir sem einnig er stofnandi og eigandi kennslueldhússins Salt Eldhús. Auður Ögn er búin að vera með Salt Eldhús í 3 og hálft ár. Nú er hún hins vegar að sækja inn á nýjan markað.

„Ég er að sækja inn á nýjan markað þar sem enginn hefur verið áður. Við erum ekki bakarí, það verður ekkert brauðmeti til sölu og opnunartíminn er ekki bakarístími. Við erum heldur ekki veitingastaður eða kaffihús, við erum take-away, þetta er bara kökusjoppa.Fólk fer út í sjoppu á daginn eða kvöldin til að ná sér í eitthvað sætt og þetta er bara einn valkosturinn í viðbót,“ segir Auður Ögn. Auk sjoppunnar býður 17 Sortir upp á veisluþjónustu.

Innblásin af Halldóri Laxness

Á hverjum degi verða 17 sortir í boði og munu þær svo breytast frá degi til dags. „Þetta er að alíslenskri fyrirmynd því ég leita í smiðju Halldórs Laxness í Kristnihaldi undir Jöklu. Þar er talað um að hér sé ekkert fínt undir 17 sortum fyrir jólin. Það er hún Hnallþóra sem lætur þessi orð falla og við skírum stóru kökurnar okkar einmitt Hnallþórur eftir henni,“ segir Auður Ögn.

Spurð um hversu mikið verður bakað af hverri sort segir Auður Ögn þau vera að renna svolítið blint í sjóiunn með það. „Við vitum ekki hvernig viðtökurnar verða, en það er bara misjafnt hvað er bakað mikið af hverju. Sumar tegundir koma örugglega til með að verða vinsælli en aðrar og þá bregðumst við bara við því með því að baka mikið af þeim. Það er okkar mottó að nota bara fyrsta flokks hráefni. Við erum að reyna að baka frá hjartanu eins og amma gerði og notum þá þessi venjulegu heimilishráefni,“ segir Auður Ögn.

Mikill meðbyr á Facebook

Um 8-9 starfsmenn vinna í 17 sortum núna og sér bakarinn Íris Björk Óskarsdóttir um allan baksturinn. Aðspurð segist Auður Ögn ekki vita hverju hún eigi von á um helgina. Mér finnst ég þó finna rosalegan meðbyr. Mér finnst viðtökurnar á Facebook búnar að vera þannig að fólk er gífurlega spennt fyrir þessu. Svo verður bara að koma á daginn hvernig þetta verður,“ segir Auður Ögn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×