Kökusjoppa opnar úti á Granda á morgun Sæunn Gísladóttir skrifar 16. október 2015 16:42 Auður Ögn Árnadóttir er eigandi 17 sorta. Vísir/Auður Ögn
Kökusjoppan 17 Sortir opnar á morgun. Á boðstólum verður úrval 17 sorta af bollakökum, hnallþórum, ostakökum, marengsbombum, smákökum og formkökum. Sjoppan er í eigu Auðar Agnar Árnadóttir sem einnig er stofnandi og eigandi kennslueldhússins Salt Eldhús. Auður Ögn er búin að vera með Salt Eldhús í 3 og hálft ár. Nú er hún hins vegar að sækja inn á nýjan markað. „Ég er að sækja inn á nýjan markað þar sem enginn hefur verið áður. Við erum ekki bakarí, það verður ekkert brauðmeti til sölu og opnunartíminn er ekki bakarístími. Við erum heldur ekki veitingastaður eða kaffihús, við erum take-away, þetta er bara kökusjoppa.Fólk fer út í sjoppu á daginn eða kvöldin til að ná sér í eitthvað sætt og þetta er bara einn valkosturinn í viðbót,“ segir Auður Ögn. Auk sjoppunnar býður 17 Sortir upp á veisluþjónustu.Innblásin af Halldóri LaxnessÁ hverjum degi verða 17 sortir í boði og munu þær svo breytast frá degi til dags. „Þetta er að alíslenskri fyrirmynd því ég leita í smiðju Halldórs Laxness í Kristnihaldi undir Jöklu. Þar er talað um að hér sé ekkert fínt undir 17 sortum fyrir jólin. Það er hún Hnallþóra sem lætur þessi orð falla og við skírum stóru kökurnar okkar einmitt Hnallþórur eftir henni,“ segir Auður Ögn. Spurð um hversu mikið verður bakað af hverri sort segir Auður Ögn þau vera að renna svolítið blint í sjóiunn með það. „Við vitum ekki hvernig viðtökurnar verða, en það er bara misjafnt hvað er bakað mikið af hverju. Sumar tegundir koma örugglega til með að verða vinsælli en aðrar og þá bregðumst við bara við því með því að baka mikið af þeim. Það er okkar mottó að nota bara fyrsta flokks hráefni. Við erum að reyna að baka frá hjartanu eins og amma gerði og notum þá þessi venjulegu heimilishráefni,“ segir Auður Ögn.Mikill meðbyr á Facebook Um 8-9 starfsmenn vinna í 17 sortum núna og sér bakarinn Íris Björk Óskarsdóttir um allan baksturinn. Aðspurð segist Auður Ögn ekki vita hverju hún eigi von á um helgina. Mér finnst ég þó finna rosalegan meðbyr. Mér finnst viðtökurnar á Facebook búnar að vera þannig að fólk er gífurlega spennt fyrir þessu. Svo verður bara að koma á daginn hvernig þetta verður,“ segir Auður Ögn.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Sjá meira