Heimkoman er hlaðin spennu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 8. október 2015 13:30 "Það sem mér finnst æðislegt við Pinter er að hann dettur í ákveðna stemningu, eins og maður gerir þegar maður sökkvir sér niður í eitthvað sem maður les eða horfir á,“ segir Ingvar E. Vísir/Pjetur
Pinter er að segja okkur margt í Heimkomunni og margt er líka ósagt. Leikritið er svo hlaðið og höfundurinn dularfullur og býr til margar spurningar sem við getum kannski svarað sjálf, hvert fyrir sig,“ byrjar Ingvar E. Sigurðsson leikari þegar hann er beðinn að lýsa leikritinu Heimkomunni í stórum dráttum. „Það er erfitt að segja eitthvað eitt um þetta leikrit nema að það er hlaðið spennu. Ég hugsa að það komi fólki á óvart,“ segir Ingvar. „Þó ég hafi þekkt það áður þá varð ég undrandi á hvað það er brútalt og átökin mikil.“ Ingvar er í hlutverki slátrara. Það út af fyrir sig á eflaust að segja manni eitthvað um persónuna. „Já, Max hefur unnið sem slátrari allt sitt líf. Það starf hefur gengið mann fram af manni innan fjölskyldunnar, faðir hans var slátrari og afi hans var slátrari. En það er líka hægt að heimfæra starfsgreinina upp á hvað sem er og maður fer að spyrja sig – er Pinter kannski að meina eitthvað annað, var Max ekki slátrari heldur hórmangari, eiturlyfjabarón eða í mansali? Var hann að slátra fólki en ekki svínum? Hlutverk Max slátrara stórt? Já, það er mjög stórt. Við höfum öll mikið vægi á sviðinu.“Heimkoman var frumsýnd 1965 og fékk þá verðlaun sem besta leikrit ársins í Bretlandi. Spurður hvort þessi uppfærsla sé að einhverju leyti færð til nútímans svarar Ingvar: „Nei, það þarf ekkert að breyta verkinu, það steinliggur eins og það er og getur gerst hvenær sem er. Á kannski alveg jafn mikið erindi núna og 1965, jafnvel meira.“ Ingvar hefur kynnst Pinter áður sem höfundi. „Við vorum tveir eða þrír sem tókum Pinter-verk sem einstaklingsverkefni í leiklistarskólanum. Síðan hef ég leikið í tveimur verkum eftir hann í stóru leikhúsunum, í Svikum í leikstjórn Eddu Heiðrúnar í Borgarleikhúsinu og í Afmælisveislunni í leikstjórn Guðjóns Pedersen í Þjóðleikhúsinu. Þetta er þriðja stóra sýningin.“ Ingvar rifjar upp að Heimkoman hafi verið flutt áður hér á landi. „Það var til dæmis fræg sýning hér í Gamla bíói 86-7 hjá P-leikhópnum sem lék bara verk Pinters. Þá var Hjalti Rögnvaldsson búinn að vera lengi í útlöndum og kom heim sérstaklega til að leika í þessu verki. Við sem vorum í skólanum þá höfðum heyrt svo mikið talað um Hjalta Rögnvalds svo það var kærkomið að fá að horfa á hann, heim kominn sérstaklega til að leika í Heimkomunni. Hann brilleraði í þessari sýningu. Björn Hlynur leikur hans rullu núna en Róbert Arnfinnsson lék slátrarann þá.“
Leikhús Mest lesið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Tískan á körfuboltaleiknum Tíska og hönnun Af vængjum fram: Eins og í bíómynd þegar þau byrjuðu loksins saman Lífið Nafn konunnar flúrað á það allra heilagasta Lífið Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Lífið Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Tónlist „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta Tónlist Líf og fjör á Grímunni Menning Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið Lífið „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Menning Fleiri fréttir „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Líf og fjör á Grímunni Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira