Foreldralausu flóttabörnin Sunna Stefánsdóttir skrifar 17. september 2015 07:00 Ég horfi stjörf á sjónvarpsskjáinn þar sem fjallað er um milljónir flóttamanna sem streyma frá stríðshrjáðum Mið-Austurlöndum í þeirri von að finna frið. Verið er að ræða við fjölskyldu á flótta og ég reyni að ímynda mér hvernig tilfinningin sé að þurfa að flýja heimili sitt, fara af stað gangandi með börnin og leggja svo í hættuför yfir Miðjarðarhafið. Staðreyndin er sú að í stríðsátökum er traðkað á mannréttindum þeirra sem eiga enga sök á ástandinu. „Á meðan við erum saman er þetta í lagi,“ segir fjölskyldufaðirinn vongóður við fréttamanninn. Þarna stoppa ég. Þessi fjölskylda er í skelfilegum aðstæðum. En ótrúlegt en satt, þá eru einstaklingar sem hafa það verra. Hverjir? Jú, börnin sem koma ein. Tölurnar segja okkur að þúsundir flóttabarna hafa komið án fylgdar foreldra til Evrópu á síðustu mánuðum. Þetta eru börn sem misst hafa foreldra sína eða orðið viðskila við þau á leiðinni. Stundum koma þessi börn í fylgd með öðrum börnum en stundum eru þau alein. Flóttabörn sem koma ein síns liðs eru í mikilli hættu á að lenda í höndum þeirra sem ekki eiga undir nokkrum kringumstæðum að koma nálægt börnum. Barnavændi og mansal eru því miður örlögin í sumum tilvikum.Heimili fyrir flóttabörn SOS Barnaþorpin sinna neyðaraðstoð fyrir flóttafólk í Evrópu. Samtökin leggja ávallt áherslu á foreldralaus börn og það sama er uppi á teningnum í þessu tilviki. Við hjálpum flóttabörnunum sem koma ein. Yfir 30 flóttabörn sem komu til Austurríkis án foreldra eignuðust nýtt heimili í SOS Barnaþorpum þar í landi á dögunum. Til stendur að gefa 70 foreldralausum flóttabörnum til viðbótar ný heimili í barnaþorpum þar á næstu þremur mánuðum. Við erum að tala um börn á aldrinum 7-13 ára frá Sýrlandi, Afganistan og Íran. Þau komu öll ein en nú hafa þau eignast fjölskyldu og heimili í SOS Barnaþorpi. Þau þurfa á miklum andlegum stuðningi að halda en í fyrsta skipti í langan tíma eiga þau von um betra líf.Hægt er að leggja málefninu lið með því að hringja í númerið 907-1001 (1.000 krónur) eða í 907-1002 (2.000 krónur). Einnig er hægt að leggja inn á reikning 334-26-52075, kt. 500289-2529 með skýringunni: Flóttafólk. Framlag þitt getur bjargað einu barni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun