Íbúðalánasjóður kaupir nýtt lánakerfi ingvar haraldsson skrifar 19. ágúst 2015 10:00 Íbúðalánasjóður hyggst spara sér fé með nýju lánakerfi. vísir/gva
Íbúðalánasjóður hefur framkvæmt útboð á nýju tölvukerfi fyrir útlán fyrirtækisins. Tilboð í tölvukerfið voru opnuð í gær og var Reiknistofa bankanna með lægsta boð sem hljóðaði upp á 72,9 milljónir króna. Kostnaðarmat var 77,1 milljón króna. Þá bauð Applicon bauð 77,3 milljónir króna og Libra 105 milljónir króna. Engin ákvörðun hefur verið tekin hjá Íbúðalánasjóði um hvaða tilboð verði fyrir valinu þar sem ekki sé búið að reikna kostnað við rekstur kerfanna. Í útboðsgögnum kom fram að lánakerfið þurfi að ráða við fleiri tegundir lána en þau sem Íbúðalánasjóður býður upp á nú sem séu vísitölutengd með föstum vöxtum. Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir enga ákvörðun hafa verið tekna um breytta útlánastefnu sjóðsins. „Kaupin eru fyrst og fremst vegna hagræðingar í rekstri. Sjóðurinn er með yfir hundrað þúsund lán í umsýslu núna og það þarf að halda utan um þessi lán burtséð frá því hvað stjórnvöld ákveða síðan með framtíð sjóðsins,“ segir Hermann. Vonast er til að hið nýja lánakerfi geti verið 20 til 50 prósent ódýrara í rekstri en gamla kerfið.
Mest lesið Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Viðskipti erlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Viðskipti innlent Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Samstarf Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Viðskipti innlent Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Sjá meira