Viðskipti innlent

Tekur við stöðu sviðs­stjóra Net­öryggis­mið­stöðvar Ís­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Skúli Bragi Geirdal er fjölmiðlafræðingur að mennt , ásamt því að hafa stundað nám í grafískri hönnun við Myndlistarskólann á Akureyri.
Skúli Bragi Geirdal er fjölmiðlafræðingur að mennt , ásamt því að hafa stundað nám í grafískri hönnun við Myndlistarskólann á Akureyri. Aðsend

Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingur í miðlalæsi hjá Fjölmiðlanefnd, hefur tekið við stöðu sviðsstjóra SAFT - Netöryggismiðstöðvar Íslands (Safer Internet Center á Íslandi).

Í tilkynningu kemur fram að Skúli sé fjölmiðlafræðingur að mennt , ásamt því að hafa stundað nám í grafískri hönnun við Myndlistarskólann á Akureyri. 

„Síðastliðin þrjú ár hefur hann verið verkefnastjóri miðlalæsis hjá Fjölmiðlanefnd og leitt þar mörg verkefni á sviði upplýsinga- og miðlalæsis. Einnig hefur hann starfað sem stundakennari í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri frá árinu 2021. Áður starfaði Skúli við dagskrárgerð og ritstjórn hjá N4 frá árinu 2018 og kom þar að gerð um 400 sjónvarpsþátta. Þá hefur hann einnig starfað sjálfstætt við hönnun og komið að nýsköpunar- og frumkvöðlastarfi á ýmsum sviðum,“ segir um Skúla í tilkynningunni. 

Haft er eftir Skúla að þegar við hugsum um netöryggi sé fyrsta hugsunin yfirleitt að tryggja innviði og þar hafi áherslan hér á landi verið að mestu leyti hingað til. „En ekki má gleyma að upplýsinga- og miðlalæsi er algjör lykilhæfni þegar hugað er að netöryggi almennings. Upplýsingaóreiða og falsfréttir hefur engin landamæri. Því er mikilvægt að við bregðumst við með fyrirbyggjandi aðgerðum í formi fræðslu og valdeflingar því netöryggi snýst ekki aðeins um að vernda innviði heldur einnig fólk á öllum aldri. Þjóðaröryggi, lýðræði og lýðheilsa eru undir og því er þetta málaflokkur sem hefur snertiflöt við öll ráðuneyti og þvert á pólitík. Samstaða og samstarf er því algjört lykilatriði til þess að ná árangri á þessu sviði,“ segir Skúli.

SAFT er vakningarátak um örugga tækni- og miðlanotkun á Íslandi. Verkefnið hefur verið styrkt og unnið í samstarfi við styrkjaáætlanir Evrópusambandsins tengdum netöryggi og vernd barna á neti. Í dag gegnir SAFT hlutverki Netöryggismiðstöðvar eða Safer Internet Center á Íslandi, en slíkar miðstöðvar eru starfræktar í flestum Evrópuríkjum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×