Viðskipti innlent

Yfir milljón far­þegar fyrstu fjóra mánuði ársins

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Þann 1. maí hóf félagið flugferðir til Færeyja og síðar í mánuðinum hefjast flugferðir til Pittsburgh í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum. 
Þann 1. maí hóf félagið flugferðir til Færeyja og síðar í mánuðinum hefjast flugferðir til Pittsburgh í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum.  Vísir/Vilhelm

Heildarfjöldi farþega Icelandair var 307 þúsund í apríl, fjórum prósentum fleiri en í apríl 2023. Það sem af er ári hefur félagið flutt meira en eina milljón farþega.

Þetta kemur fram í fréttatilynningu frá Icelandair, en félagið birti flutningatölur í kauphöll fyrr í dag. Þar kemur fram að í mánuðinum hafi 27 prósent farþega verið á leið til landsins, 17 prósent frá landinu, 49 prósent voru tengifarþegar og 7 prósent ferðuðust innanlands.

Þá segir að framboð hafi aukist um 11 prósent frá apríl á síðasta ári og farþegaflutningar mældir í tekjufarþegakílómetrum jukust um 8 prósent. Sætanýting var 81 prósent og stundvísi var 88,3 prósent, 7,8 prósentustigum hærri en í apríl 2023.

Hefja flug til Pittsburgh

„Í apríl fluttum við þrjú hundruð þúsund farþega og það sem af er ári hafa farþegar verið yfir ein milljón talsins. Þetta er heilbrigður vöxtur farþega en fækkun farþega til og frá landinu í mánuðinum skýrist af því að páskarnir voru í mars á þessu ári en í apríl í fyrra. Eftirspurn í tengiflugi heldur áfram að vera sterk og næstum helmingur farþega okkar voru tengifarþegar, samanborið við 40% í fyrra,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair í fréttatilkynningu. 

„Þessar tölur sýna skýrt sveigjanleikann í leiðakerfinu okkar og hvernig við getum með öflugri tekjustýringu fært framboðið til þeirra markaða þar sem eftirspurnin er sterkust á hverjum tíma. Ég er mjög ánægður að sjá áframhaldandi góða stundvísi. Hún skýrist af skýrum áherslum félagsins og frábærri vinnu Icelandair teymisins. Í maí kynnum við þrjá nýja sumaráfangastaði. Þann 1. maí hófum við flug til Færeyja og síðar í mánuðinum hefjum við flug til Pittsburgh og Halifax,“ segir Bogi jafnframt. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×