Miðvörður úr gullaldarliði Skagamanna sló fyrsta höggið á Íslandsmótinu í golfi Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. júlí 2015 10:00 Ólafur Adolfsson á fyrsta teig í morgun. mynd/gsí
Íslandsmótið í golfi 2015 á Eimskipsmótaröðinni var sett í morgun á Garðavelli á Akranesi. Þórður Emil Ólafsson formaður Golfklúbbsins Leynis og Eggert Ágúst Sverrisson varaforseti Golfsambands Íslands settu mótið með formlegum hætti í blíðskaparveðri. Ólafur Adolfsson, formaður bæjarráðs sló fyrsta högg mótsins en hann hafði æft af kappi og undirbúið sig vel fyrir þessa áskorun. Höggið var þráðbeint og hélt Ólafur boltanum vel niðri í hliðarvindinum. Færri keppendur komust inn í mótið en vildu en 120 karlar eru skráðir til leiks og 30 konur. Leiknar verða 72 holur á fjórum dögum en fækkað verður í keppendahópnum eftir 36 holur. Þeir sem verða í 72 efstu sætunum í karlaflokki komast áfram og 18 efstu í kvennaflokknum. Úrslitin ráðast síðdegis á sunnudag. Alls eru sex keppendur í kvennaflokki sem hafa fagnað Íslandsmeistaratitlinum. Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) (2009, 2012), Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) (2011, 2014), Sunna Víðisdóttir (GR) (2013), Tinna Jóhannsdóttir (GK) (2010), Ragnhildur Sigurðardóttir (GR) (1985, 1998, 2003, 2005), Þórdís Geirsdóttir (GK) (1987). Alls eru 30 keppendur í kvennaflokki á Garðavelli á Akranesi en 33 keppendur voru á Leirdalsvelli í fyrra hjá GKG. Frá árinu 2001 hefur meðalkeppendafjöldi í kvennaflokknum verið 22. Árið 2004 voru 17 konur sem tóku þátt þegar Íslandsmótið fór fram árið 2004 á Garðavelli. Árið 2004 þegar Íslandsmótið fór í fyrsta sinn fram á Garðavelli sigraði Ólöf María Jónsdóttir úr GK eftir spennandi keppni gegn Tinnu Jóhannsdóttur. Aðeins voru leiknar þrjár umferðir en önnur umferð mótsins var felld niður vegna gríðarlegrar úrkomu fyrri part dags. Úrkoman hafði ekki áhrif á keppnishaldið í karlaflokknum. Alls eru átta kylfingar á meðal keppenda sem hafa sigrað á Íslandsmótinu í golfi í karlaflokki. Björgvin Þorsteinsson GA og Úlfar Jónsson GKG eru með sex titla hvor. Birgir Leifur Hafþórsson GKG er ekki á meðal keppenda en hann er við keppni á sterku atvinnumóti í Evrópu á Áskorendamótaröðinni. Kristján Þór Einarsson (GM) 2008, Ólafur Björn Loftsson GKG (2009), Axel Bóasson (GK)(2011), Haraldur Franklín Magnús (GR)(2012), Heiðar Davíð Bragason (GHD) (2005), Úlfar Jónsson GKG (1986, 1987, 1989, 1990, 1991, 1992), Björgvin Þorsteinsson (GA) (1971, 1973, 1974, 1975, 1976, 1977), Þórður Emil Ólafsson (GL) (1997).Frétt af Golf.is.
Golf Mest lesið Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Enski boltinn Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Enski boltinn Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Keppir á Steraleikunum en ætlar líka á næstu Ólympíuleika Sport Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Fótbolti Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Íslenski boltinn Saga Elvars er ótrúleg Sport Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Fótbolti Ísland - Svartfjallaland | Geta hefnt fyrir tapið á HM Handbolti Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Enski boltinn Fleiri fréttir Luke Donald getur skrifað Ryder-söguna en verður það á móti Tiger? Sakar mótaröðina um að kúga kylfinga Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira