Lögregla leitar ágengs perra í Garðabæ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júlí 2015 17:19 Maðurinn stöðvaði stúlkurnar á göngu sinni í íbúðarhverfi nærri íþróttasvæði Stjörnunnar í Garðabænum í hádeginu í gær. Kort/Loftmyndir.is
Tvær stúlkur á táningsaldri urðu fyrir aðkasti karlmanns á leið sinni til unglingavinnu að loknu hádegishléi í Garðabænum í gær. Lögregla staðfestir að til standi að skoða upptökur á öryggismyndavélum en maðurinn er ófundinn. Atvikið átti sér stað í íbúðahverfi nærri Stjörnuheimilinu. Móðir annarar stúlkunnar segir í samtali við Vísi að vinkonurnar hafi verið að mæta aftur til vinnu þegar maðurinn veittist að þeim. Hann hafi gripið í dóttur hennar og „leikið við sjálfan sig.“ Móðirin, sem vill ekki láta nafns síns getið dóttur sinnar vegna, segir stúlkurnar hafa hlaupið í burtu. Þær hafi snúið sér við á hlaupunum og séð manninn glottandi við sömu athöfn og áður. „Augnráðið situr í henni,“ segir móðirin.Flassarar venjulega ekki agressívir Stúlkurnar hlupu upp í Garðaskóla og tilkynntu flokkstjóra sínum hvað gerst hafði. Hann hafi hringt í lögreglu sem mætt hafi á svæðið. Lögreglan í Hafnarfirði, sem er með málið til skoðunar, segir að ekki liggi fyrir hver hafi verið þarna á ferð. Móðirin hefur eftir lögreglunni að „flassarar“ gripu venjulega ekki í fórnarlömb sín eins og þarna. Þeir væru allajafna ekki svo „agressífir“. „Það er verst að þetta er um hábjartan dag í íbúðahverfi,“ segir móðirin sem vonast til þess að lögreglan komist til botns í málinu að lokinni skoðun á öryggismyndavélum. Lögreglan hafi haft á orði að uppátæki á borð við þessi gerðust oft í hrynum og því full ástæða til að hafa augun opin.
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira