Matur

Pizzasnúðar með skinku og pepperoni

Rikka skrifar
visir/evalaufey

Sjónvarspkokkurinn Eva Laufey, heldur úti girnilegu matarbloggi þar sem hægt er að finna ógrynni af frábærum uppskriftum. Hér gefur Eva Laufey okkur uppskrift af einföldum pizzasnúðum.

Pizzasnúðar með skinku og pepperoni

Þessi uppskrift er stór, ég skipti henni í tvennt bjó til snúða og skinkuhorn. Helmingur af þessari uppskrift gaf mér semsagt 20 meðalstóra pizzasnúða. 

900 g Kornax hveiti (í rauðu pökkunum)

40 g sykur

½ tsk salt

100 g smjör, brætt

500 ml mjólk

1 pakki þurrger (12 g)

Fylling:

1 bréf skinka

1 bréf pepperoni

pizzasósa, magn eftir smekk

rifinn mozzarella ostur, magn eftir smekk

oreganó krydd

Til að pensla yfir:

1 egg

2 msk mjólk

rifinn ostur

oreganó krydd

Aðferð:

Hitið mjólk í potti, mjólkin á að vera volg. Vekjið gerið í mjólkinni, en það tekur um það bil fimm mínútur. Um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerblandan tilbúin. Bræðið smjör. Blandið öllu saman í skál og hnoðið deigið mjög vel, ég leyfi hnoðaranum á hrærivélinni minni að sjá um verkið en þá tekur það um bil bil fimm til sex mínútur.

Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að lyfta sér í rúmlega klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldast og jafnvel þrefaldað stærð sína.

Hitið ofninn í 180°C.

Skiptið deiginu í tvennt, stráið hveiti á borðflöt og hnoðið létt.

Fletjið deigið út með kökukefli. Smyrjið deigið með pizzasósu, skerið niður skinku og pepperoni og leggið yfir. Sáldrið rifnum mozzarella osti yfir og kryddið til með oreganó. Rúllið deiginu saman og skerið hverja rúllu í 18 – 20 bita.

Leggið bitana beint á pappírsklædda ofnplötu eða í bollakökuform eins og ég gerði.

Penslið snúðana með eggjablöndunni og sáldri rifnum mozzarella osti yfir og kryddið gjarnan með oreganó.

Bakið snúðana við 180°C í 10 – 12 mínútur eða þar til snúðarnir eru gullinbrúnir.


Tengdar fréttir

Eva Laufey bakar gómsætar makkarónur

Matargleði Evu var undir frönskum áhrifum í síðasta þætti og bakaði Eva meðal annars þessar makkarónur sem gleðja bæði augað og bragðlaukana.

Laxasteik og laxaborgari með frönskum sætkartöflum

Eva Laufey bauð upp á lax á tvo vegu í þættinum Matargleði á Stöð 2 í gærkvöldi og ættu þessir réttir að henta vel þegar sest er að snæðingi í sólinni. Lax er hollur og góður fiskur sem passar vel hvort heldur sem er á grillið eða beint á pönnuna.

Beikon- og piparostafylltur hamborgari

Það er fátt betra en heimagerður hamborgari með öllu því sem hugurinn girnist. Þegar sólin skín er upplagt að dusta rykið af grillinu og grilla ljúffengan mat sem kemur okkur öllum í sumarskap. Þessi beikon- og piparostafyllti hamborgari er algjörlega ómótstæðilegur, ég segi það og skrifa.

Sushi að hætti Evu Laufeyjar

Lax er mikið notaður í japanskri matargerð og þá sérstaklega í sushi. Í síðasta þætti Matargleði Evu bjó hún til einfalda sushi rétti sem allir geta leikið eftir.

Ofnbakaður lax að hætti Evu Laufeyjar

Lax er með því hollara sem við getum í okkur látið og er hann sannkölluð ofurfæða. Hægt er að matreiða lax á marga vegu og er hann sérstaklega bragðgóður þegar hann er bakaður í ofni.

Frönsk lauksúpa

Galdurinn við góða lauksúpu er að leyfa lauknum að krauma í smjörinu í dágóðan tíma. Hér er uppskrift að bragðmikilli lauksúpu sem Eva Laufey eldaði í þætti sínum, Matargleði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×