Matur

Sushi að hætti Evu Laufeyjar

Eva Laufey Kjaran skrifar
Þetta lítur glæsilega út.
Þetta lítur glæsilega út. visir.is/evalaufeykjaran

Sashimi er japanskur réttur sem nýtur mikilla vinsælda víða um heim. Það besta við þessa uppskrift er hversu einföld hún er. Þessi samsetning þ.e.a.s að bera lax fram með mangó, lárperu og ponzusósu er vinsælasta útgáfan og það er ekki að ástæðulausu. Ég smakkaði þennan rétt hjá svilkonu minni og kolféll fyrir honum, enda er hann afar ljúffengur. Ég mæli með að þið prófið og njótið vel.

Innihald

300 g lax, beinhreinsaður og skorinn í þunnar sneiðar

1 lárpera, vel þroskað

1 mangó, vel þroskað

1 dl límónusafi

¾ sojasósa

½ rautt chili

1 ½ msk kóríander

¼ tsk rifið engifer

1 msk vorlaukur, smátt skorinn

sesamfræ, ristuð

Aðferð

Best er að byrja á Ponzusósunni en það er japönsk sósa sem gerð er úr sojasósu og safa úr sítrusávöxtum.  Blandið öllum hráefnum saman í matvinnsluvél eða maukið saman með töfrasprota. Geymið í kæliskáp á meðan þið setjið laxinn á disk.

Skerið laxinn, mangó og lárperu afar þunnt og setjið á disk. Hellið sósunni yfir eða berið fram í sér skál. Ristið sesamfræ á pönnu og drefið yfir. Í lokin er bæði gott og fallegt að skera niður ferskt kóríander sem þið setjið yfir réttinn.

Nigiri er einfalt og ljómandi gott sushi. Hrísgrjónin eru formuð í aflanga kodda og yfir þá er lagður biti af hráu og fersku fiskmeti.

Innihald

350 g sushi hrísgrjón

7 ½ dl vatn

salt

hrísgrjónaedik

sykur

wasabi mauk

300 g lax, beinhreinsaður

Aðferð

  1. Skolið hrísgrjónin mjög vel, mér finnst best að skola þau í góðu sigti. Það tekur svolitla stund eða um 5 – 7 mínútur.
  2. Setjið hrísgrjónin út í kalt vatn í þykkbotna pott og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann þannig að rétt malli og sjóðið í tíu mínútur við lægsta suðuhita.
  3. Takið pottinn af hitanum og hafið lok á. Látið standa í 10 mínútur áður en hrísgrjónin eru notuð til sushi gerðar.
  4. Setjið hrísgrjónin í pappírsklædda ofnplötu og hellið ediksblöndu yfir (blandið saman hrísgrjónaediki og sykri).
  5. Blandið vel saman og leyfið grjónunum að kólna alveg áður en þið notið þau.

Nigiri koddar

  1. Notið matskeið til þess að fá sömu stærð, mótið hrísgrjónin í lófann og kreistið saman þar til myndast egglaga form.
  2. Smyrjið wasabi ofan á koddann og leggið þann fisk sem þið viljið yfir.
  3. Skerið niður vorlauk og chili og skreytið.
  4. Berið fram með engifer og sojasósu.

Njótið vel. 

Hér finnið þið fleiri uppskriftir frá Evu Laufeyju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×