Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól á heimavelli

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Heimamaðurinn, Hamilton var hraðastur í dag.
Heimamaðurinn, Hamilton var hraðastur í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól fyrir breska kappaksturinn. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Felipe Massa á Williams varð þriðji.

Margir ökumenn fóru út fyrir brautarmörk sem í Copse beygjunni sem fyrirfram var búið að vara við. Tímar þeirra þann hringinn giltu því ekki. Pastor Maldonado átti sérstaklega erfitt með að halda Lotus bílnum inn á brautinni í Copse.

Kimi Raikkonen endaði fyrstu lotuna á toppnum. Hann var á meðal mjúkum dekkjum en Mercedes var eina liðið sem ekki þurfti að setja mýkri dekkin undir. Rosberg og Hamilton fóru í gegnum fyrstu lotuna á hörðum dekkjum.

Í annarri lotu lenti Kimi Raikkonen í vandræðum með brautarmörk þegar þrjár mínútur voru eftir. Hann kom í mark áttundi en endaði níundi og slapp inn í þriðju lotu með naumindum.

Max Verstappen var ekki kátur „ég veit ekki hvað gerðist síðan á æfingunni en það er engin beygja eins á brautinni núna,“ sagði hinn ungi ökumaður sem datt út í annarri lotu. Verstappen var fimmti á þriðju æfingunni í morgun en 13. í tímatökunni.

Massa stal þriðja sætinu undir lokin.Vísir/Getty
Einungis einn tíundi skildi Mercedes mennina að eftir fyrstu tilraun í þirðju lotu. Williams ökumennirnir voru þá í þeiðja og fjórða sæti og Ferrari í fimmta og sjötta.

Seinni tilraun þriðju lotu varð ekki eins spennandi og hún hefði geta orðið. Massa náði þó þriðja sæti á ráslínu af liðsfélaga sínum Valtteri Bottas.

Einungis í þremur af síðustu 17 keppnum á Silverstone hefur ökumaðurinn á ráspól unnið keppnina. Það er því ástæða til að hlakka til keppninnar á morgun. Það getur ýmislegt gerst.

Keppnin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 11:30 á morgun.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort með öllum helstu tímum helgarinnar.


Tengdar fréttir

Nýr bíll Force India vekur tilhlökkun

Force India ætlar að kynna nýjan bíl þessa helgi á Silverstone brautinni í Bretlandi. Liðið er fullt tilhlökkunar samkvæmt Vijay Mallya, liðsstjóra Force India.

Bílskúrinn: Allt markvert frá Austurríki

Nico Rosberg bítur frá sér, nælir í 25 stig og gerir það með glans. Kimi Raikkonen verður undir Fernando Alonso, Williams stelur verðlaunum af Ferrari.

Vandi McLaren ekki allur hjá Honda

Þróunar- og varaökumaður McLaren, Stoffel Vandoorne segir að til að komast aftur á toppinn þurfi bætingar á öllum sviðum. Skortur á vélarafli sé ekki eini vandinn.

Nico Rosberg átti daginn á Silverstone

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins. Hann rétt marði liðsfélaga sinn Lewis Hamilton á fyrri æfingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×