Lífið

Fyrrverandi trommari AC/DC dæmdur í stofufangelsi

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Rudd var dæmdur fyrir morðhótanir og vörslu fíkniefna.
Rudd var dæmdur fyrir morðhótanir og vörslu fíkniefna. Vísir/AFP
Phil Rudd, fyrrverandi trommari rokkhljómsveitarinnar AC/DC, hefur verið dæmdur í átta mánaða stofufangelsi í Nýja Sjálandi fyrir vörslu eiturlyfja og morðhótanir. Trommarinn neitaði fyrst sök en breytti afstöðu sinni til ákærunnar í apríl síðastliðnum.

Rudd var dæmdur fyrir að hóta fyrrverandi starfsmanni sínum og dóttur hans og fyrir vörslu eiturlyfja sem lögreglan fann þegar hún leitaði á heimili hans í tengslum við hótunarkæruna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.